2Samuel (1/24) → |
1. | Eftir dauða Sáls, þá er Davíð var heim kominn og hafði unnið sigur á Amalekítum og hann hafði verið tvo daga um kyrrt í Siklag, |
2. | þá kom skyndilega þriðja daginn maður úr herbúðum Sáls. Var hann í rifnum klæðum og hafði ausið mold yfir höfuð sér. Og er hann kom til Davíðs, féll hann til jarðar og laut honum. |
3. | Og Davíð sagði við hann: ,,Hvaðan kemur þú?`` Hann svaraði honum: ,,Ég komst undan úr herbúðum Ísraels.`` |
4. | Davíð sagði við hann: ,,Hvernig hefir gengið? Seg mér það.`` Hann svaraði: ,,Liðið er flúið úr orustunni, og margir úr liðinu eru líka fallnir og dauðir. Líka eru þeir Sál og Jónatan sonur hans dauðir.`` |
5. | Þá sagði Davíð við manninn, sem flutti honum tíðindin: ,,Hvernig veistu það, að þeir Sál og Jónatan sonur hans eru dauðir?`` |
6. | Þá svaraði maðurinn, sem flutti honum tíðindin: ,,Alveg af tilviljun kom ég upp á Gilbóafjall. Þar hitti ég Sál. Studdist hann við spjót sitt, en vagnar og riddarar voru á hælum honum. |
7. | Hann sneri sér þá við, og er hann sá mig, kallaði hann á mig, og ég svaraði: ,Hér er ég.` |
8. | Og hann sagði við mig: ,Hver ert þú?` Ég svaraði: ,Ég er Amalekíti.` |
9. | Þá sagði hann við mig: ,Kom þú hingað til mín og deyð þú mig, því að mig sundlar, og þó er ég enn með fullu fjöri.` |
10. | Þá gekk ég til hans og vann á honum, því að ég vissi að hann gat ekki lifað eftir ófarir sínar. Tók ég kórónuna af höfði honum og hringinn af armlegg hans og færi ég þér nú, herra minn!`` |
11. | Þá þreif Davíð í klæði sín og reif þau sundur. Svo gjörðu og allir menn, þeir er með honum voru. |
12. | Og þeir syrgðu og grétu og föstuðu til kvelds sakir Sáls og Jónatans sonar hans og sakir lýðs Drottins og húss Ísraels, af því að þeir voru fallnir fyrir sverði. |
13. | Þá sagði Davíð við manninn, sem flutti honum tíðindin: ,,Hvaðan ert þú?`` Hann svaraði: ,,Ég er sonur hjábýlings nokkurs, sem er Amalekíti.`` |
14. | Þá sagði Davíð við hann: ,,Hvernig dirfðist þú að hefja hönd til þess að drepa Drottins smurða?`` |
15. | Og Davíð kallaði á einn af sveinunum og mælti: ,,Kom þú hingað og drep hann.`` Og hann hjó hann banahögg. |
16. | En Davíð mælti til hans: ,,Blóð þitt komi yfir höfuð þér! því að þú hefir sjálfur kveðið upp dóm yfir þér, er þú sagðir: ,Ég hefi deytt Drottins smurða.``` |
17. | Davíð orti þetta sorgarkvæði eftir þá Sál og Jónatan son hans, |
18. | og hann bauð að kenna Júda sonum Kvæðið um bogann. Sjá, það er ritað í Bók hinna réttlátu: |
19. | Prýðin þín, Ísrael, liggur vegin á fjöllum þínum. En að hetjurnar skuli vera fallnar! |
20. | Segið ekki frá því í Gat, kunngjörið það eigi á Askalon-strætum, svo að dætur Filista fagni eigi og dætur óumskorinna hlakki eigi. |
21. | Þér Gilbóafjöll, eigi drjúpi dögg né regn á yður, þér svikalönd, því að þar var snarað burt skildi kappanna, skildi Sáls, sem eigi verður framar olíu smurður. |
22. | Frá blóði hinna vegnu, frá feiti kappanna hörfaði bogi Jónatans ekki aftur, og eigi hvarf sverð Sáls heim við svo búið. |
23. | Sál og Jónatan, ástúðugir og ljúfir í lífinu, skildu eigi heldur í dauðanum. Þeir voru örnum léttfærari, ljónum sterkari. |
24. | Ísraels dætur, grátið Sál! Hann skrýddi yður skarlati yndislega, hann festi gullskart á klæðnað yðar. |
25. | En að hetjurnar skyldu falla í bardaganum og Jónatan liggja veginn á hæðum þínum! |
26. | Sárt trega ég þig, bróðir minn Jónatan, mjög varstu mér hugljúfur! Ást þín var mér undursamlegri en ástir kvenna.En að hetjurnar skuli vera fallnar og hervopnin glötuð! |
27. | En að hetjurnar skuli vera fallnar og hervopnin glötuð! |
2Samuel (1/24) → |