← 2Kings (9/25) → |
1. | Elísa spámaður kallaði einn af spámannasveinunum og sagði við hann: ,,Gyrð þú lendar þínar, tak þessa flösku af olífuolíu með þér og far til Ramót í Gíleað. |
2. | Og er þú ert þangað kominn, skalt þú svipast þar um eftir Jehú Jósafatssyni, Nimsísonar. Gakk síðan til hans og bið hann standa upp frá félögum sínum og far með hann inn í innsta herbergið. |
3. | Því næst skalt þú hella olífuolíunni yfir höfuð honum og segja: ,Svo segir Drottinn: Ég smyr þig til konungs yfir Ísrael.` Opna þú síðan dyrnar og flýt þér burt og dvel eigi.`` |
4. | Fór þá sveinninn, sveinn spámannsins, til Ramót í Gíleað. |
5. | En er hann kom þangað, sátu herforingjarnir þar saman. Og hann mælti: ,,Ég á erindi við þig, herforingi!`` Jehú svaraði: ,,Við hvern af oss?`` Hann svaraði: ,,Við þig, herforingi!`` |
6. | Þá stóð hann upp og gekk inn í húsið. Og hann hellti olíu yfir höfuð honum og sagði við hann: ,,Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Ég smyr þig til konungs yfir lýð Drottins, yfir Ísrael. |
7. | Þú skalt útrýma ætt Akabs, herra þíns, svo að ég fái þann veg komið fram hefndum á Jesebel fyrir blóð þjóna minna, spámannanna, og fyrir blóð allra þjóna Drottins. |
8. | Já, öll ætt Akabs skal fyrirfarast, og ég mun uppræta fyrir Akabsætt hvern karlmann, bæði þræl og frelsingja í Ísrael. |
9. | Og ég mun fara með ætt Akabs eins og með ætt Jeróbóams Nebatssonar og ætt Basa Ahíasonar. |
10. | En Jesebel skulu hundar eta í landareign Jesreelborgar, og enginn skal jarða hana.`` Síðan lauk hann upp hurðinni og flýtti sér burt. |
11. | En er Jehú kom út til þjóna herra síns, sögðu þeir við hann: ,,Er nokkuð að? Hvers vegna er þessi vitfirringur til þín kominn?`` Hann svaraði þeim: ,,Þér þekkið manninn og tal hans.`` |
12. | Þá sögðu þeir: ,,Það er ósatt mál! Seg oss það.`` Þá sagði hann: ,,Svo og svo hefir hann við mig talað og sagt: ,Svo segir Drottinn: Ég smyr þig til konungs yfir Ísrael.``` |
13. | Þá tóku þeir í skyndi hver sína yfirhöfn og lögðu fyrir fætur honum á sjálfar tröppurnar, þeyttu lúðurinn og hrópuðu: ,,Jehú er konungur orðinn!`` |
14. | Þannig hóf Jehú Jósafatsson, Nimsísonar, samsæri gegn Jóram, en Jóram og allur Ísrael hafði varið Ramót í Gíleað fyrir Hasael Sýrlandskonungi. |
15. | En síðan hafði Jóram konungur snúið aftur til þess að láta græða sár sín í Jesreel, þau er Sýrlendingar höfðu veitt honum, þá er hann barðist við Hasael Sýrlandskonung. Jehú mælti: ,,Ef þér viljið fylgja mér, þá látið engan undan komast út úr borginni til þess að segja tíðindin í Jesreel.`` |
16. | Síðan steig Jehú á vagn sinn og hélt til Jesreel, því að þar lá Jóram, og Ahasía Júdakonungur var kominn þangað til að vitja um Jóram. |
17. | Varðmaður stóð uppi á turninum í Jesreel, og er hann sá flokk Jehú koma, sagði hann: ,,Ég sé flokk manna.`` Þá mælti Jóram: ,,Tak riddara og send móti þeim til þess að spyrja þá, hvort þeir fari með friði.`` |
18. | Riddarinn fór í móti honum og sagði: ,,Konungur lætur spyrja, hvort þér farið með friði.`` Jehú svaraði: ,,Hvað varðar þig um það? Snú við og fylg mér.`` Varðmaðurinn sagði frá því og mælti: ,,Sendimaðurinn er kominn til þeirra, en kemur ekki aftur.`` |
19. | Þá sendi hann annan riddara, og er hann kom til þeirra, sagði hann: ,,Konungur lætur spyrja, hvort þér farið með friði.`` Jehú svaraði: ,,Hvað varðar þig um það? Snú við og fylg mér.`` |
20. | Varðmaðurinn sagði frá því og mælti: ,,Hann er kominn til þeirra, en kemur ekki aftur. Er þar ekið, sem aki þar Jehú Nimsíson, því að hann ekur eins og vitlaus maður.`` |
21. | Þá bauð Jóram að beita fyrir vagn sinn. Og er beitt hafði verið fyrir vagn hans, fóru þeir Jóram Ísraelskonungur og Ahasía Júdakonungur af stað, hvor á sínum vagni. Fóru þeir í móti Jehú og hittu hann á landspildu Nabóts Jesreelíta. |
22. | En er Jóram sá Jehú, sagði hann: ,,Fer þú með friði, Jehú?`` Hann svaraði: ,,Hvað er um frið að ræða, meðan Jesebel móðir þín heldur áfram með hórdóm sinn og hina margvíslegu töfra sína?`` |
23. | Þá sneri Jóram við og lagði á flótta og kallaði til Ahasía: ,,Svik, Ahasía!`` |
24. | En Jehú þreif boga sinn og skaut Jóram milli herða, svo að örin gekk í gegnum hjartað, og hné hann niður í vagni sínum. |
25. | Þá sagði hann við Bídkar, riddara sinn: ,,Tak hann og kasta honum á landspildu Nabóts Jesreelíta, því að þú manst víst, að ég og þú riðum báðir á eftir Akab föður hans, þá er Drottinn kvað upp þessi dómsorð gegn honum: |
26. | ,Sannarlega sá ég í gær blóð Nabóts og blóð barna hans, segir Drottinn, og mun ég launa þér á landspildu þessari, segir Drottinn.` Tak hann því og kasta honum á landspilduna eftir orði Drottins.`` |
27. | Þegar Ahasía Júdakonungur sá þetta, flýði hann í áttina til garðhússins. En Jehú elti hann og sagði: ,,Hann líka! Skjótið hann í vagninum!`` Og þeir skutu hann á Gúr-stígnum, sem er hjá Jibleam. Og hann flýði til Megiddó og dó þar. |
28. | Síðan settu menn hans hann á vagn og fluttu hann til Jerúsalem og jörðuðu hann í gröf hans hjá feðrum hans í borg Davíðs. |
29. | En Ahasía hafði orðið konungur í Júda á ellefta ríkisári Jórams Akabssonar. |
30. | Nú kom Jehú til Jesreel. En er Jesebel frétti það, smurði hún sig í kringum augun skrýddi höfuð sitt og horfði út um gluggann. |
31. | Og er Jehú kom í hliðið, kallaði hún: ,,Hvernig líður Simrí, sem myrti herra sinn?`` |
32. | En hann leit upp í gluggann og mælti: ,,Hver er með mér, hver?`` Og er tveir eða þrír hirðmenn litu út til hans, |
33. | sagði hann: ,,Kastið henni ofan!`` Og þeir köstuðu henni ofan, og slettist þá blóð hennar á vegginn og hestana, og tróðu þeir hana undir fótunum. |
34. | En hann gekk inn og át og drakk. Síðan sagði hann: ,,Lítið eftir þessari bölvuðu konu og jarðið hana, því að konungsdóttir er hún.`` |
35. | Þá fóru þeir til þess að jarða hana, en fundu ekkert af henni, nema hauskúpuna og fætur og hendur. |
36. | Og er þeir komu aftur og sögðu honum frá, mælti hann: ,,Rætast nú orð Drottins, þau er hann talaði fyrir munn þjóns síns Elía frá Tisbe: ,Á landareign Jesreelborgar skulu hundar eta hold Jesebelar,og hræ Jesebelar skal liggja á landareign Jesreelborgar sem tað á túni, svo að menn skulu ekki geta sagt: Það er Jesebel.``` |
37. | og hræ Jesebelar skal liggja á landareign Jesreelborgar sem tað á túni, svo að menn skulu ekki geta sagt: Það er Jesebel.``` |
← 2Kings (9/25) → |