2Kings (1/25) → |
1. | Eftir dauða Akabs braust Móab undan Ísrael. |
2. | Ahasía féll ofan um grindurnar á loftsal sínum í Samaríu og varð sjúkur. Þá gjörði hann út sendimenn og sagði við þá: ,,Farið og gangið til frétta við Baal Sebúb, guðinn í Ekron, hvort ég muni heill verða af þessum sjúkdómi.`` |
3. | En engill Drottins sagði við Elía Tisbíta: ,,Tak þig upp og far á móti sendimönnum konungsins í Samaríu og seg við þá: ,Það er víst enginn guð til í Ísrael, úr því þér farið til þess að ganga til frétta við Baal Sebúb, guðinn í Ekron? |
4. | Fyrir því segir Drottinn svo: Úr rekkjunni, sem þú nú ert lagstur í, skalt þú ekki rísa, heldur skalt þú deyja.``` Síðan fór Elía burt. |
5. | Þá er sendimennirnir komu aftur til konungs, sagði hann við þá: ,,Hví eruð þér komnir aftur?`` |
6. | Þeir svöruðu honum: ,,Maður kom á móti oss og sagði við oss: ,Farið og snúið aftur heim til konungsins, er yður sendi, og segið við hann: Svo segir Drottinn: Það er víst enginn guð til í Ísrael, úr því þú sendir til þess að leita frétta hjá Baal Sebúb, guðinum í Ekron. Fyrir því skalt þú eigi rísa úr rekkjunni, sem þú nú ert lagstur í, heldur skalt þú deyja.``` |
7. | Þá mælti konungur við þá: ,,Hvernig var sá maður í hátt, sem kom á móti yður og talaði þessi orð við yður?`` |
8. | Þeir svöruðu honum: ,,Hann var í skinnfeldi og gyrður leðurbelti um lendar sér.`` Þá mælti hann: ,,Það hefir verið Elía frá Tisbe.`` |
9. | Þá sendi konungur fimmtíumannaforingja og fimmtíu menn hans með honum til Elía. Fór hann þá upp til hans _ en hann sat efst uppi á fjalli _ og sagði við hann: ,,Þú guðsmaður! Konungur segir: Kom þú ofan!`` |
10. | Elía svaraði og sagði við fimmtíumannaforingjann: ,,Sé ég guðsmaður, þá falli eldur af himni og eyði þér og þínum fimmtíu mönnum.`` Féll þá eldur af himni og eyddi honum og mönnum hans fimmtíu. |
11. | Og konungur sendi aftur til hans annan fimmtíumannaforingja og fimmtíu menn hans með honum. Fór hann upp og sagði við hann: ,,Þú guðsmaður, svo segir konungur: Kom sem skjótast ofan!`` |
12. | En Elía svaraði og sagði við þá: ,,Sé ég guðsmaður, þá falli eldur af himni og eyði þér og þínum fimmtíu mönnum.`` Féll þá eldur Guðs af himni og eyddi honum og mönnum hans fimmtíu. |
13. | Þá sendi konungur enn þriðja fimmtíumannaforingjann og fimmtíu menn hans með honum. Og fimmtíumannaforinginn þriðji fór upp, og er hann kom þangað, féll hann á kné fyrir Elía, grátbændi hann og mælti til hans: ,,Þú guðsmaður, þyrm nú lífi mínu og lífi þessara fimmtíu þjóna þinna. |
14. | Sjá, eldur er fallinn af himni og hefir eytt báðum fyrri fimmtíumannaforingjunum og fimmtíu mönnum þeirra. En þyrm þú lífi mínu.`` |
15. | Þá sagði engill Drottins við Elía: ,,Far þú ofan með honum og ver óhræddur við hann.`` Stóð hann þá upp og fór ofan með honum til konungs |
16. | og sagði við hann: ,,Svo segir Drottinn: Af því að þú gjörðir út sendimenn til þess að leita frétta hjá Baal Sebúb, guðinum í Ekron, _ það er víst enginn guð til í Ísrael, er leita megi frétta hjá _ þá skalt þú eigi rísa úr rekkjunni, sem þú nú ert lagstur í, heldur skalt þú deyja.`` |
17. | Og hann dó eftir orði Drottins, því er Elía hafði talað. Og Jóram bróðir hans tók ríki eftir hann á öðru ríkisári Jórams Jósafatssonar, konungs í Júda, því að hann átti engan son.En það sem meira er að segja um Ahasía, hvað hann gjörði, það er ritað í Árbókum Ísraelskonunga. |
18. | En það sem meira er að segja um Ahasía, hvað hann gjörði, það er ritað í Árbókum Ísraelskonunga. |
2Kings (1/25) → |