← 1Timothy (5/6) → |
1. | Ávíta þú ekki aldraðan mann harðlega, heldur áminn hann sem föður, yngri menn sem bræður, |
2. | aldraðar konur sem mæður, ungar konur sem systur í öllum hreinleika. |
3. | Heiðra ekkjur, sem í raun og veru eru ekkjur. |
4. | En ef einhver ekkja á börn eða barnabörn, þá læri þau fyrst og fremst að sýna rækt eigin heimili og endurgjalda foreldrum sínum, því að það er þóknanlegt fyrir augliti Guðs. |
5. | Sú sem er í raun og veru ekkja og er orðin munaðarlaus, festir von sína á Guði og er stöðug í ákalli og bænum nótt og dag. |
6. | En hin bílífa er dauð, þó að hún lifi. |
7. | Brýn þetta fyrir þeim, til þess að þær séu óaðfinnanlegar. |
8. | En ef einhver sér eigi fyrir sínum, sérstaklega heimilismönnum, þá hefur hann afneitað trúnni og er verri en vantrúaður. |
9. | Ekkja sé ekki tekin á skrá yfir ekkjur nema hún sé orðin fullra sextíu ára, eingift |
10. | og lofsamlega kunn að góðum verkum. Hún verður að hafa fóstrað börn, sýnt gestrisni, þvegið fætur heilagra, hjálpað bágstöddum og lagt stund á hvert gott verk. |
11. | En tak ekki við ungum ekkjum. Þegar þær verða gjálífar afrækja þær Krist, vilja giftast |
12. | og gerast þá sekar um að brjóta sitt fyrra heit. |
13. | Og jafnframt temja þær sér iðjuleysi, rápandi hús úr húsi, ekki einungis iðjulausar, heldur einnig málugar og hlutsamar og tala það, sem eigi ber að tala. |
14. | Ég vil því að ungar ekkjur giftist, ali börn, stjórni heimili og gefi mótstöðumanninum ekkert tilefni til illmælis. |
15. | Nokkrar hafa þegar horfið frá til fylgis við Satan. |
16. | Ef trúuð kona á fyrir ekkjum að sjá, skal hún sjá fyrir þeim, og eigi hafi söfnuðurinn þyngsli af, til þess að hann geti veitt hjálpina þeim, sem ekkjur eru og einstæðar. |
17. | Öldungar þeir, sem veita góða forstöðu, séu hafðir í tvöföldum metum, allra helst þeir sem erfiða í orðinu og í kennslu. |
18. | Því að ritningin segir: ,,Þú skalt ekki múlbinda uxann, er hann þreskir`` og ,,verður er verkamaðurinn launa sinna.`` |
19. | Tak þú ekki við kæru gegn öldungi, nema tveir eða þrír vottar beri. |
20. | Ávíta brotlega í viðurvist allra, til þess að hinir megi hafa ótta. |
21. | Ég heiti á þig fyrir augliti Guðs og Krists Jesú og hinna útvöldu engla, að þú gætir þessa án nokkurs fordóms og gjörir ekkert af vilfylgi. |
22. | Eigi skalt þú fljótráðið leggja hendur yfir nokkurn mann. Tak eigi heldur þátt í annarra syndum, varðveit sjálfan þig hreinan. |
23. | Ver þú ekki lengur að drekka vatn, heldur skalt þú neyta lítils eins af víni vegna magans og veikinda þinna, sem eru svo tíð. |
24. | Syndirnar hjá sumum mönnum eru í augum uppi og eru komnar á undan, þegar dæma skal. En hjá sumum koma þær líka á eftir.Á sama hátt eru góðverkin augljós, og þau, sem eru það ekki, munu ekki geta dulist. |
25. | Á sama hátt eru góðverkin augljós, og þau, sem eru það ekki, munu ekki geta dulist. |
← 1Timothy (5/6) → |