← 1Thessalonians (5/5) |
1. | En um tíma og tíðir hafið þér, bræður, ekki þörf á að yður sé skrifað. |
2. | Þér vitið það sjálfir gjörla, að dagur Drottins kemur sem þjófur á nóttu. |
3. | Þegar menn segja: ,,Friður og engin hætta``, þá kemur snögglega tortíming yfir þá, eins og jóðsótt yfir þungaða konu. Og þeir munu alls ekki undan komast. |
4. | En þér, bræður, eruð ekki í myrkri, svo að dagurinn geti komið yfir yður sem þjófur. |
5. | Þér eruð allir synir ljóssins og synir dagsins. Vér heyrum ekki nóttunni til né myrkrinu. |
6. | Vér skulum þess vegna ekki sofa eins og aðrir, heldur vökum og verum algáðir. |
7. | Þeir, sem sofa, sofa á nóttunni og þeir, sem drekka sig drukkna, drekka á nóttunni. |
8. | En vér, sem heyrum deginum til, skulum vera algáðir, klæddir brynju trúar og kærleika og von hjálpræðis sem hjálmi. |
9. | Guð hefur ekki ætlað oss til að verða reiðinni að bráð, heldur til að öðlast sáluhjálp fyrir Drottin vorn Jesú Krist, |
10. | sem dó fyrir oss, til þess að vér mættum lifa með honum, hvort sem vér vökum eða sofum. |
11. | Áminnið því hver annan og uppbyggið hver annan, eins og þér og gjörið. |
12. | Vér biðjum yður, bræður, að sýna þeim viðurkenningu, sem erfiða á meðal yðar og veita yður forstöðu í Drottni og áminna yður. |
13. | Auðsýnið þeim sérstaka virðingu og kærleika fyrir verk þeirra. Lifið í friði yðar á milli. |
14. | Vér áminnum yður, bræður: Vandið um við þá, sem óreglusamir eru, hughreystið ístöðulitla, takið að yður þá, sem óstyrkir eru, verið langlyndir við alla. |
15. | Gætið þess, að enginn gjaldi neinum illt með illu, en keppið ávallt eftir hinu góða, bæði hver við annan og við alla aðra. |
16. | Verið ætíð glaðir. |
17. | Biðjið án afláts. |
18. | Þakkið alla hluti, því að það er vilji Guðs með yður í Kristi Jesú. |
19. | Slökkvið ekki andann. |
20. | Fyrirlítið ekki spádómsorð. |
21. | Prófið allt, haldið því, sem gott er. |
22. | En forðist allt illt, í hvaða mynd sem er. |
23. | En sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega og andi yðar, sál og líkami varðveitist alheil og vammlaus við komu Drottins vors Jesú Krists. |
24. | Trúr er sá, er yður kallar, hann mun koma þessu til leiðar. |
25. | Bræður, biðjið fyrir oss! |
26. | Heilsið öllum bræðrunum með heilögum kossi.Ég bið og brýni yður í Drottins nafni, að þér látið lesa bréf þetta upp fyrir öllum bræðrunum. |
27. | Ég bið og brýni yður í Drottins nafni, að þér látið lesa bréf þetta upp fyrir öllum bræðrunum. |
← 1Thessalonians (5/5) |