← 1Samuel (8/31) → |
1. | Er Samúel var orðinn gamall, setti hann sonu sína dómara yfir Ísrael. |
2. | Frumgetinn sonur hans hét Jóel, en annar sonur hans Abía. Þeir dæmdu í Beerseba. |
3. | En synir hans fetuðu ekki í fótspor hans, heldur hneigðust þeir til ágirndar og þágu mútur og hölluðu réttinum. |
4. | Þá söfnuðust allir öldungar Ísraels saman og fóru á fund Samúels í Rama |
5. | og sögðu við hann: ,,Sjá, þú ert nú orðinn gamall og synir þínir feta ekki í fótspor þín. Set oss því konung til að dæma oss, eins og er hjá öllum öðrum þjóðum.`` |
6. | En Samúel mislíkaði það, að þeir sögðu: ,,Gef oss konung til þess að dæma oss!`` Og Samúel bað til Drottins. |
7. | Drottinn sagði við Samúel: ,,Lát þú að orðum lýðsins í öllu því, sem þeir biðja þig um, því að þeir hafa ekki hafnað þér, heldur hafa þeir hafnað mér, að ég skuli ekki lengur vera konungur yfir þeim. |
8. | Svona hafa þeir ávallt breytt frá þeim degi, er ég leiddi þá út af Egyptalandi, allt fram á þennan dag. Þeir hafa yfirgefið mig og þjónað öðrum guðum. Öldungis á sama hátt fara þeir nú og með þig. |
9. | Lát því nú að orðum þeirra. Þó skalt þú vara þá alvarlega við, og segja þeim háttu konungsins, sem ríkja á yfir þeim.`` |
10. | Þá sagði Samúel lýðnum, sem heimti af honum konung, öll orð Drottins |
11. | og mælti: ,,Þessi mun verða háttur konungsins, sem yfir yður á að ríkja: Sonu yðar mun hann taka og setja þá við vagn sinn og á hesta sína, og þeir munu hlaupa fyrir vagni hans, |
12. | og hann mun skipa þá höfuðsmenn yfir þúsund og höfuðsmenn yfir fimmtíu, og setja þá til að plægja akurland sitt og skera upp korn sitt og gjöra hernaðartygi sín og ökutygi. |
13. | Og dætur yðar mun hann taka og láta þær búa til smyrsl, elda og baka. |
14. | Og bestu lendur yðar, víngarða og olífugarða mun hann taka og gefa þjónum sínum, |
15. | og af sáðlöndum yðar og víngörðum mun hann taka tíund og gefa hana geldingum sínum og þjónum sínum. |
16. | Og þræla yðar og ambáttir og hina bestu uxa yðar og asna yðar mun hann taka og hafa til sinna verka. |
17. | Af sauðfénaði yðar mun hann taka tíund, en sjálfir munuð þér verða þrælar hans. |
18. | Þá munuð þér hrópa undan konungi yðar, er þér þá hafið kjörið yður, en þá mun Drottinn ekki svara yður.`` |
19. | En fólkið vildi ekki hlýða fortölum Samúels og sagði: ,,Nei, konungur skal yfir oss vera, |
20. | svo að vér séum eins og allar aðrar þjóðir, og konungur vor skal dæma oss og vera fyrirliði vor og heyja bardaga vora.`` |
21. | Samúel hlýddi á öll ummæli lýðsins og tjáði þau fyrir Drottni.En Drottinn sagði við Samúel: ,,Lát þú að orðum þeirra og set yfir þá konung.`` Þá sagði Samúel við Ísraelsmenn: ,,Farið burt, hver til síns heimkynnis.`` |
22. | En Drottinn sagði við Samúel: ,,Lát þú að orðum þeirra og set yfir þá konung.`` Þá sagði Samúel við Ísraelsmenn: ,,Farið burt, hver til síns heimkynnis.`` |
← 1Samuel (8/31) → |