← 1Samuel (22/31) → |
1. | Davíð fór þaðan og komst undan í Adúllamhelli. Og er bræður hans og allt hús föður hans fréttu það, komu þeir þangað til hans. |
2. | Og allir nauðstaddir menn söfnuðust til hans og allir þeir, sem komnir voru í skuldir, svo og allir þeir, er óánægðir voru, og gjörðist hann höfðingi þeirra. Voru nú með honum um fjögur hundruð manns. |
3. | Davíð fór þaðan til Mispe í Móab og sagði við Móabskonung: ,,Leyf föður mínum og móður minni að vera hér hjá yður, uns ég fæ að vita, hvað Guð gjörir við mig.`` |
4. | Síðan skildi hann þau eftir hjá Móabskonungi, og þau voru hjá honum meðan Davíð var í virkinu. |
5. | Og Gað spámaður sagði við Davíð: ,,Þú skalt ekki vera kyrr í virkinu. Haf þig á braut og far til Júda.`` Þá fór Davíð af stað og kom í Heretskóg. |
6. | Nú fréttir Sál, að Davíð sé fundinn og þeir menn, sem með honum voru. Sál sat í Gíbeu undir tamarisktrénu á hæðinni og hafði spjót í hendi, og allir þjónar hans stóðu umhverfis hann. |
7. | Þá mælti Sál við þjóna sína, sem stóðu umhverfis hann: ,,Heyrið, þér Benjamínítar! Ætli Ísaísonur gefi yður öllum akra og víngarða og gjöri yður alla að hersveitarforingjum og hundraðshöfðingjum? |
8. | Þér hafið allir gjört samsæri á móti mér, og enginn sagði mér frá því, þegar sonur minn gjörði bandalag við Ísaíson, og enginn yðar hefir kennt í brjósti um mig og sagt mér frá því, að sonur minn hefir eflt þegn minn til fjandskapar í móti mér, eins og nú er fram komið.`` |
9. | Þá tók Dóeg Edómíti til máls, _ en hann stóð hjá þjónum Sáls _ og mælti: ,,Ég sá Ísaíson koma til Nób, til Ahímeleks Ahítúbssonar, |
10. | og gekk hann til frétta við Drottin fyrir hann. Hann gaf honum og vistir, og sverð Golíats Filista fékk hann honum.`` |
11. | Þá sendi konungur eftir Ahímelek presti Ahítúbssyni og öllu frændliði hans, prestunum í Nób, og þeir komu allir á konungs fund. |
12. | Þá mælti Sál: ,,Heyr þú, Ahítúbsson!`` Hann svaraði: ,,Hér er ég, herra minn!`` |
13. | Sál mælti til hans: ,,Hví hafið þið gjört samsæri í móti mér, þú og Ísaíson, þar sem þú fékkst honum brauð og sverð og gekkst til frétta við Guð fyrir hann, svo að hann gæti risið til fjandskapar í gegn mér, eins og nú er fram komið?`` |
14. | Ahímelek svaraði konungi og mælti: ,,Hver er svo trúr sem Davíð meðal allra þjóna þinna, tengdasonur konungsins, foringi lífvarðar þíns og mikils metinn í húsi þínu? |
15. | Er þetta þá í fyrsta sinni, sem ég geng til frétta við Guð fyrir hann? Fjarri fer því. Konungur má eigi gefa þjóni sínum og öllu frændliði mínu sök á þessu, því að þjónn þinn vissi alls ekki neitt um þetta.`` |
16. | En konungur mælti: ,,Þú skalt lífið láta, Ahímelek, þú og allt frændlið þitt.`` |
17. | Og konungur mælti til varðmannanna, sem hjá honum stóðu: ,,Komið hingað og deyðið presta Drottins, því að einnig þeir hafa hjálpað Davíð. Og þótt þeir vissu, að hann var að flýja, þá létu þeir mig ekki vita það.`` En þjónar konungs vildu ekki leggja hendur á presta Drottins. |
18. | Þá sagði konungur við Dóeg: ,,Kom þú hingað og drep þú prestana.`` Og Dóeg Edómíti gekk þangað, og hann drap prestana og deyddi á þeim degi áttatíu og fimm menn, sem báru línhökul. |
19. | Og Nób, borg prestanna, eyddi hann með sverðseggjum; bæði karla og konur, börn og brjóstmylkinga, uxa, asna og sauði felldi hann með sverðseggjum. |
20. | Aðeins einn af sonum Ahímeleks Ahítúbssonar komst undan. Hann hét Abjatar og flýði til Davíðs og gekk í sveit með honum. |
21. | Og Abjatar sagði Davíð frá, að Sál hefði myrt presta Drottins. |
22. | Davíð sagði við Abjatar: ,,Ég vissi það þá þegar, úr því að Dóeg Edómíti var þar, að hann mundi segja Sál frá því. Ég á sök á lífláti allra ættmenna þinna.Vertu hjá mér og óttast ekki, því að sá sem leitar eftir mínu lífi, leitar eftir þínu lífi. Hjá mér er þér óhætt.`` |
23. | Vertu hjá mér og óttast ekki, því að sá sem leitar eftir mínu lífi, leitar eftir þínu lífi. Hjá mér er þér óhætt.`` |
← 1Samuel (22/31) → |