← 1Samuel (11/31) → |
1. | Nahas Ammóníti fór og settist um Jabes í Gíleað. Þá sögðu allir Jabesbúar við Nahas: ,,Gjör þú sáttmála við oss, og munum vér þjóna þér.`` |
2. | Nahas Ammóníti svaraði þeim: ,,Með þeim kostum vil ég gjöra sáttmála við yður, að ég stingi út á yður öllum hægra augað og gjöri öllum Ísrael háðung með því.`` |
3. | Öldungarnir í Jabes sögðu við hann: ,,Gef oss sjö daga frest, og munum vér senda sendiboða um allt Ísraels land, og ef enginn þá hjálpar oss, munum vér gefast upp fyrir þér.`` |
4. | Þegar sendiboðarnir komu til Gíbeu Sáls og báru upp erindi sitt í áheyrn lýðsins, þá hóf allur lýðurinn upp raust sína og grét. |
5. | Og sjá, þá kom Sál á eftir nautunum utan af akri. Og Sál mælti: ,,Hvað ber til þess, að fólkið er að gráta?`` Og þeir sögðu honum erindi Jabesmanna. |
6. | Þá kom andi Guðs yfir Sál, er hann heyrði þessi tíðindi, og varð hann reiður mjög. |
7. | Og hann tók tvo uxa og brytjaði þá og sendi stykkin um allt Ísraels land með sendiboðunum og lét þá orðsending fylgja: ,,Svo skal farið með naut hvers þess manns, er eigi fylgir Sál og Samúel í hernað.`` Þá kom ótti Drottins yfir fólkið, svo að þeir lögðu af stað sem einn maður. |
8. | Og hann kannaði liðið í Besek, og voru þá Ísraelsmenn þrjú hundruð þúsund og Júdamenn þrjátíu þúsund. |
9. | Og þeir sögðu við sendiboðana, sem komnir voru: ,,Segið svo mönnunum í Jabes í Gíleað: Á morgun um hádegisbil skal yður koma hjálp.`` Og sendimennirnir komu og sögðu Jabesbúum frá þessu, og urðu þeir glaðir við. |
10. | Og Jabesbúar sögðu við Nahas: ,,Á morgun munum vér gefast upp fyrir yður. Þá getið þér gjört við oss hvað sem yður gott þykir.`` |
11. | En morguninn eftir skipti Sál liðinu í þrjá flokka, og brutust þeir inn í herbúðirnar um morgunvökuna og felldu Ammóníta fram til hádegis. Og þeir, sem af komust, dreifðust víðsvegar, svo að ekki urðu eftir af þeim tveir saman. |
12. | Þá sagði fólkið við Samúel: ,,Hverjir voru það, sem sögðu: ,Á Sál að verða konungur yfir oss?` Framseljið þá menn, svo að vér getum drepið þá.`` |
13. | En Sál sagði: ,,Engan mann skal deyða á þessum degi, því að í dag hefir Drottinn veitt Ísrael sigur.`` |
14. | Samúel sagði við lýðinn: ,,Komið, vér skulum fara til Gilgal og endurnýja þar konungdóminn.``Þá fór allur lýðurinn til Gilgal og gjörði Sál þar að konungi frammi fyrir Drottni í Gilgal. Og þeir fórnuðu þar heillafórnum frammi fyrir Drottni, og Sál og allir Ísraelsmenn glöddu sig þar mikillega. |
15. | Þá fór allur lýðurinn til Gilgal og gjörði Sál þar að konungi frammi fyrir Drottni í Gilgal. Og þeir fórnuðu þar heillafórnum frammi fyrir Drottni, og Sál og allir Ísraelsmenn glöddu sig þar mikillega. |
← 1Samuel (11/31) → |