← 1Corinthians (6/16) → |
1. | Getur nokkur yðar, sem hefur sök móti öðrum, fengið af sér að leggja málið undir dóm heiðinna manna, en ekki hinna heilögu? |
2. | Eða vitið þér ekki, að hinir heilögu eiga að dæma heiminn? Og ef þér eigið að dæma heiminn, eruð þér þá óverðugir að dæma í hinum minnstu málum? |
3. | Vitið þér eigi, að vér eigum að dæma engla? Hvað þá heldur tímanleg efni! |
4. | Þegar þér eigið að dæma um tímanleg efni, þá kveðjið þér að dómurum menn, sem að engu eru hafðir í söfnuðinum. |
5. | Ég segi það yður til blygðunar. Er þá enginn vitur til á meðal yðar, sem skorið geti úr málum milli bræðra? |
6. | Í stað þess á bróðir í máli við bróður og það fyrir vantrúuðum! |
7. | Annars er það nú yfirleitt galli á yður, að þér eigið í málaferlum hver við annan. Hví líðið þér ekki heldur órétt? Hví látið þér ekki heldur hafa af yður? |
8. | Í stað þess hafið þér rangsleitni í frammi og hafið af öðrum og það af bræðrum! |
9. | Vitið þér ekki, að ranglátir munu ekki Guðs ríki erfa? Villist ekki! Hvorki munu saurlífismenn né skurðgoðadýrkendur, hórkarlar né kynvillingar, |
10. | þjófar né ásælnir, drykkjumenn, lastmálir né ræningjar Guðs ríki erfa. |
11. | Og þetta voruð þér, sumir yðar. En þér létuð laugast, þér eruð helgaðir, þér eruð réttlættir fyrir nafn Drottins Jesú Krists og fyrir anda vors Guðs. |
12. | Allt er mér leyfilegt, en ekki er allt gagnlegt. Allt er mér leyfilegt, en ég má ekki láta neitt fá vald yfir mér. |
13. | Maturinn er fyrir magann og maginn fyrir matinn, en Guð mun hvort tveggja að engu gjöra. En líkaminn er ekki fyrir saurlífi, heldur fyrir Drottin og Drottinn fyrir líkamann. |
14. | Guð hefur uppvakið Drottin og mun uppvekja oss fyrir kraft sinn. |
15. | Vitið þér ekki, að líkamir yðar eru limir Krists? Á ég þá að taka limi Krists og gjöra þá að skækjulimum? Fjarri fer því. |
16. | Vitið þér ekki, að sá er samlagar sig skækjunni verður ásamt henni einn líkami? Því að sagt er: ,,Þau tvö munu verða eitt hold.`` |
17. | En sá er samlagar sig Drottni er einn andi ásamt honum. |
18. | Flýið saurlifnaðinn! Sérhver önnur synd, sem maðurinn drýgir, er fyrir utan líkama hans. En saurlífismaðurinn syndgar á móti eigin líkama. |
19. | Vitið þér ekki, að líkami yðar er musteri heilags anda, sem í yður er og þér hafið frá Guði? Og ekki eruð þér yðar eigin.Þér eruð verði keyptir. Vegsamið því Guð með líkama yðar. |
20. | Þér eruð verði keyptir. Vegsamið því Guð með líkama yðar. |
← 1Corinthians (6/16) → |