← 1Corinthians (3/16) → |
1. | Ég gat ekki, bræður, talað við yður eins og við andlega menn, heldur eins og við holdlega, eins og við ómálga í Kristi. |
2. | Mjólk gaf ég yður að drekka, ekki fasta fæðu, því að enn þolduð þér það ekki. Og þér þolið það jafnvel ekki enn, |
3. | því að enn þá eruð þér holdlegir menn. Fyrst metingur og þráttan er á meðal yðar, eruð þér þá eigi holdlegir og hegðið yður á manna hátt? |
4. | Þegar einn segir: ,,Ég er Páls,`` en annar: ,,Ég er Apollóss,`` eruð þér þá ekki eins og hverjir aðrir menn? |
5. | Hvað er þá Apollós? Já, hvað er þá Páll? Þjónar, sem hafa leitt yður til trúar, og það eins og Drottinn hefur gefið hvorum um sig. |
6. | Ég gróðursetti, Apollós vökvaði, en Guð gaf vöxtinn. |
7. | Þannig er þá hvorki sá neitt, er gróðursetur, né sá, er vökvar, heldur Guð, sem vöxtinn gefur. |
8. | Sá, sem gróðursetur, og sá, sem vökvar, eru eitt. En sérhver mun fá laun eftir sínu erfiði. |
9. | Því að samverkamenn Guðs erum vér, og þér eruð Guðs akurlendi, Guðs hús. |
10. | Eftir þeirri náð, sem Guð hefur veitt mér, hef ég eins og vitur húsameistari lagt grundvöll, er annar byggir ofan á. En sérhver athugi, hvernig hann byggir. |
11. | Annan grundvöll getur enginn lagt en þann, sem lagður er, sem er Jesús Kristur. |
12. | En ef einhver byggir ofan á grundvöllinn gull, silfur, dýra steina, tré, hey eða hálm, |
13. | þá mun verk hvers um sig verða augljóst. Dagurinn mun leiða það í ljós, af því að hann opinberast með eldi og eldurinn mun prófa hvílíkt verk hvers og eins er. |
14. | Ef nú verk einhvers fær staðist, það er hann byggði ofan á, mun hann taka laun. |
15. | Ef verk einhvers brennur upp, mun hann bíða tjón. Sjálfur mun hann frelsaður verða, en þó eins og úr eldi. |
16. | Vitið þér eigi, að þér eruð musteri Guðs og að andi Guðs býr í yður? |
17. | Ef nokkur eyðir musteri Guðs, mun Guð eyða honum, því að musteri Guðs er heilagt, og þér eruð það musteri. |
18. | Enginn dragi sjálfan sig á tálar. Ef nokkur þykist vitur yðar á meðal í þessum heimi, verði hann fyrst heimskur til þess að hann verði vitur. |
19. | Því að speki þessa heims er heimska hjá Guði. Ritað er: Hann er sá, sem grípur hina vitru í slægð þeirra. |
20. | Og aftur: Drottinn þekkir hugsanir vitringanna, að þær eru hégómlegar. |
21. | Fyrir því stæri enginn sig af mönnum. Því að allt er yðar, |
22. | hvort heldur er Páll, Apollós eða Kefas, heimurinn, líf eða dauði, hið yfirstandandi eða hið komandi, allt er yðar.En þér eruð Krists og Kristur Guðs. |
23. | En þér eruð Krists og Kristur Guðs. |
← 1Corinthians (3/16) → |