← 1Corinthians (12/16) → |
1. | En svo ég minnist á gáfur andans, bræður, þá vil ég ekki að þér séuð fáfróðir um þær. |
2. | Þér vitið, að þegar þér voruð heiðingjar, þá létuð þér leiða yður til mállausra skurðgoðanna, rétt eins og verkast vildi. |
3. | Fyrir því læt ég yður vita, að enginn, sem talar af Guðs anda, segir: ,,Bölvaður sé Jesús!`` og enginn getur sagt: ,,Jesús er Drottinn!`` nema af heilögum anda. |
4. | Mismunur er á náðargáfum, en andinn er hinn sami, |
5. | og mismunur er á embættum, en Drottinn hinn sami, |
6. | og mismunur er á hæfileikum að framkvæma, en Guð hinn sami, sem öllu kemur til leiðar í öllum. |
7. | Andinn opinberast í sérhverjum til þess, sem gagnlegt er. |
8. | Einum er fyrir andann gefið að mæla af speki, öðrum að mæla af þekkingu í krafti sama anda. |
9. | Hinn sami andi veitir einum trú, öðrum lækningagáfu |
10. | og öðrum kraft til að framkvæma undur. Einn fær spádómsgáfu, annar hæfileika að greina anda, einn að tala tungum og annar að útleggja tungutal. |
11. | En öllu þessu kemur til leiðar eini og sami andinn, og hann útbýtir hverjum einum eftir vild sinni. |
12. | Því að eins og líkaminn er einn og hefur marga limi, en allir limir líkamans, þótt margir séu, eru einn líkami, þannig er og Kristur. |
13. | Í einum anda vorum vér allir skírðir til að vera einn líkami, hvort sem vér erum Gyðingar eða Grikkir, þrælar eða frjálsir, og allir fengum vér einn anda að drekka. |
14. | Því að líkaminn er ekki einn limur, heldur margir. |
15. | Ef fóturinn segði: ,,Fyrst ég er ekki hönd, heyri ég ekki líkamanum til,`` þá er hann ekki fyrir það líkamanum óháður. |
16. | Og ef eyrað segði: ,,Fyrst ég er ekki auga, heyri ég ekki líkamanum til,`` þá er það ekki þar fyrir líkamanum óháð. |
17. | Ef allur líkaminn væri auga, hvar væri þá heyrnin? Ef hann væri allur heyrn, hvar væri þá ilmanin? |
18. | En nú hefur Guð sett hvern einstakan lim á líkamann eins og honum þóknaðist. |
19. | Ef allir limirnir væru einn limur, hvar væri þá líkaminn? |
20. | En nú eru limirnir margir, en líkaminn einn. |
21. | Augað getur ekki sagt við höndina: ,,Ég þarfnast þín ekki!`` né heldur höfuðið við fæturna: ,,Ég þarfnast ykkar ekki!`` |
22. | Nei, miklu fremur eru þeir limir á líkamanum nauðsynlegir, sem virðast vera í veikbyggðara lagi. |
23. | Og þeim, sem oss virðast vera í óvirðulegra lagi á líkamanum, þeim veitum vér því meiri sæmd, og þeim, sem vér blygðumst vor fyrir, sýnum vér því meiri blygðunarsemi. |
24. | Þess þarfnast hinir ásjálegu limir vorir ekki. En Guð setti líkamann svo saman, að hann gaf þeim, sem síðri var, því meiri sæmd, |
25. | til þess að ekki yrði ágreiningur í líkamanum, heldur skyldu limirnir bera sameiginlega umhyggju hver fyrir öðrum. |
26. | Og hvort heldur einn limur þjáist, þá þjást allir limirnir með honum, eða einn limur er í hávegum hafður, samgleðjast allir limirnir honum. |
27. | Þér eruð líkami Krists og limir hans hver um sig. |
28. | Guð hefur sett nokkra í kirkjunni, fyrst postula, í öðru lagi spámenn, í þriðja lagi fræðara, sumum hefur hann veitt gáfu að gjöra kraftaverk, lækna, vinna líknarstörf, stjórna og tala tungum. |
29. | Hvort eru allir postular? Hvort eru allir spámenn? Hvort eru allir fræðarar? Hvort eru allir kraftaverkamenn? |
30. | Hvort hafa allir hlotið lækningagáfu? Hvort tala allir tungum? Hvort útlista allir tungutal?Nei, sækist heldur eftir náðargáfunum, þeim hinum meiri. Og nú bendi ég yður á enn þá miklu ágætari leið. |
31. | Nei, sækist heldur eftir náðargáfunum, þeim hinum meiri. Og nú bendi ég yður á enn þá miklu ágætari leið. |
← 1Corinthians (12/16) → |