1Corinthians (1/16) → |
1. | Páll, kallaður að Guðs vilja til að vera postuli Jesú Krists, og Sósþenes, bróðir vor, heilsa |
2. | söfnuði Guðs í Korintu, þeim sem helgaðir eru í Kristi Jesú, heilagir að köllun til, ásamt öllum þeim, sem alls staðar ákalla nafn Drottins vors Jesú Krists, sem er þeirra Drottinn og vor. |
3. | Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi. |
4. | Ávallt þakka ég Guði mínum yðar vegna fyrir þá náð, sem hann hefur gefið yður í Kristi Jesú. |
5. | Í honum eruð þér auðgaðir orðnir í öllu, í hvers konar ræðu og hvers konar þekkingu. |
6. | Vitnisburðurinn um Krist er líka staðfestur orðinn á meðal yðar, |
7. | svo að yður brestur ekki neina náðargjöf meðan þér væntið opinberunar Drottins vors Jesú Krists. |
8. | Hann mun og gjöra yður staðfasta allt til enda, óásakanlega á degi Drottins vors Jesú Krists. |
9. | Trúr er Guð, sem yður hefur kallað til samfélags sonar síns Jesú Krists, Drottins vors. |
10. | En ég áminni yður, bræður, í nafni Drottins vors Jesú Krists, að þér séuð allir samhuga og ekki séu flokkadrættir á meðal yðar, heldur að þér séuð fullkomlega sameinaðir í sama hugarfari og í sömu skoðun. |
11. | Því að mér hefur verið tjáð um yður, bræður mínir, af heimilismönnum Klóe, að þrætur eigi sér stað á meðal yðar. |
12. | Ég á við þetta, að sumir yðar segja: ,,Ég er Páls,`` og aðrir: ,,Ég er Apollóss,`` eða: ,,Ég er Kefasar,`` eða: ,,Ég er Krists.`` |
13. | Er þá Kristi skipt í sundur? Mun Páll hafa verið krossfestur fyrir yður? Eða eruð þér skírðir til nafns Páls? |
14. | Ég þakka Guði fyrir, að ég hef engan yðar skírt nema Krispus og Gajus, |
15. | til þess að enginn skuli segja, að þér séuð skírðir til nafns míns. |
16. | Jú, ég skírði líka Stefanas og heimamenn hans. Annars veit ég ekki til, að ég hafi skírt neinn annan. |
17. | Ekki sendi Kristur mig til að skíra, heldur til að boða fagnaðarerindið, _ og ekki með orðspeki, til þess að kross Krists missti ekki gildi sitt. |
18. | Því að orð krossins er heimska þeim er glatast, en oss, sem hólpnir verðum, er það kraftur Guðs. |
19. | Ritað er: Ég mun eyða speki spekinganna, og hyggindi hyggindamannanna mun ég að engu gjöra. |
20. | Hvar er vitringur? Hvar fræðimaður? Hvar orðkappi þessarar aldar? Hefur Guð ekki gjört speki heimsins að heimsku? |
21. | Því þar eð heimurinn með speki sinni þekkti ekki Guð í speki hans, þóknaðist Guði að frelsa þá, er trúa, með heimsku prédikunarinnar. |
22. | Gyðingar heimta tákn, og Grikkir leita að speki, |
23. | en vér prédikum Krist krossfestan, Gyðingum hneyksli og heiðingjum heimsku, |
24. | en hinum kölluðu, bæði Gyðingum og Grikkjum, Krist, kraft Guðs og speki Guðs. |
25. | Því að heimska Guðs er mönnum vitrari og veikleiki Guðs mönnum sterkari. |
26. | Bræður, hyggið að köllun yðar: Þér voruð ekki margir vitrir að manna dómi, ekki margir máttugir, ekki margir stórættaðir. |
27. | En Guð hefur útvalið það, sem heimurinn telur heimsku, til að gjöra hinum vitru kinnroða, og Guð hefur útvalið það, sem heimurinn telur veikleika til að gjöra hinu volduga kinnroða. |
28. | Og hið ógöfuga í heiminum og hið fyrirlitna hefur Guð útvalið, það sem ekkert er, til þess að gjöra að engu það, sem eitthvað er, |
29. | til þess að enginn maður skuli hrósa sér fyrir Guði. |
30. | Honum er það að þakka að þér eruð í samfélagi við Krist Jesú. Hann er orðinn oss vísdómur frá Guði, bæði réttlæti, helgun og endurlausn.Eins og ritað er: ,,Sá, sem hrósar sér, hrósi sér í Drottni.`` |
31. | Eins og ritað er: ,,Sá, sem hrósar sér, hrósi sér í Drottni.`` |
1Corinthians (1/16) → |