← 1Chronicles (9/29) → |
1. | Allir Ísraelsmenn voru skráðir í ættartölur. Eru þeir ritaðir í bók Ísraelskonunga. Og Júdamenn voru herleiddir til Babel sakir ótrúmennsku þeirra. |
2. | En hinir fyrri íbúar, er voru í landeign þeirra og borgum, voru Ísraelsmenn, prestarnir, levítarnir og musterisþjónarnir. |
3. | Og í Jerúsalem bjuggu menn af Júdasonum, Benjamínssonum, Efraímssonum og Manassesonum: |
4. | Útaí Ammíhúdsson, Omrísonar, Imrísonar, Banísonar, er var af niðjum Peres, sonar Júda. |
5. | Og af Sílónítum: Asaja, frumgetningurinn og synir hans. |
6. | Og af niðjum Sera: Jegúel. Og bræður þeirra voru sex hundruð og níutíu alls. |
7. | Af Benjamínítum: Sallúm Mesúllamsson, Hódavjasonar, Hassenúasonar, |
8. | enn fremur Jíbneja Jeróhamsson, Ela Ússíson, Míkrísonar, Mésúllam Sefatjason, Regúelssonar, Jíbnejasonar, |
9. | og bræður þeirra eftir ættum þeirra, níu hundruð fimmtíu og sex alls. Allir þessir menn voru ætthöfðingjar í ættum sínum. |
10. | Af prestunum: Jedaja, Jójaríb, Jakín |
11. | og Asarja Hilkíason, Mesúllamssonar, Sadókssonar, Merajótssonar, Ahítúbssonar, höfuðsmaður yfir musteri Guðs. |
12. | Enn fremur Adaja Jeróhamsson, Pashúrssonar, Malkíasonar, og Maesí Adíelsson, Jahserasonar, Mesúllamssonar, Mesillemítssonar, Immerssonar. |
13. | Og bræður þeirra, ætthöfðingjar, voru alls eitt þúsund, sjö hundruð og sextíu, dugandi menn til þess að gegna þjónustu við musteri Guðs. |
14. | Af levítunum: Semaja Hassúbsson, Asríkamssonar, Hasabjasonar, af Meraríniðjum. |
15. | Enn fremur Bakbakkar, Heres, Galal, Mattanja Míkason, Síkrísonar, Asafssonar, |
16. | og Óbadía Semajason, Galalssonar, Jedútúnssonar og Berekía Asason, Elkanasonar, er bjó í þorpum Netófatíta. |
17. | Hliðverðirnir: Sallúm, Akkúb, Talmon og Ahíman og bræður þeirra. Var Sallúm æðstur, |
18. | og gætir hann enn konungshliðsins gegnt austri. Þetta eru hliðverðirnir í hópi levíta. |
19. | En Sallúm Kóreson, Ebjasafssonar, Kórasonar, og bræður hans, er voru af ætt hans, Kóraítarnir, höfðu þjónustu á hendi, þar sem þeir gættu þröskulda tjaldsins. Höfðu feður þeirra gætt dyranna í herbúðum Drottins, |
20. | og var Pínehas Eleasarsson forðum höfðingi þeirra. Drottinn sé með honum! |
21. | En Sakaría Meselemjason gætti dyra samfundatjalds-búðarinnar. |
22. | Alls voru þessir, er teknir voru til þess að vera dyraverðir, tvö hundruð og tólf. Voru þeir skráðir í ættartölur í þorpum sínum _ höfðu þeir Davíð og Samúel, sjáandinn, skipað þá í embætti þeirra _, |
23. | voru þeir og synir þeirra við hliðin á húsi Drottins, tjaldbúðinni, til þess að gæta þeirra. |
24. | Stóðu hliðverðirnir gegnt hinum fjórum áttum, gegnt austri, vestri, norðri og suðri. |
25. | En bræður þeirra, er bjuggu í þorpum sínum, áttu að koma inn við og við, sjö daga í senn, til þess að aðstoða þá, |
26. | því að þeir, fjórir yfirhliðverðirnir, höfðu stöðugt starf á hendi. Þetta eru levítarnir. Þeir höfðu og umsjón með herbergjum og fjársjóðum Guðs húss, |
27. | og héldu til um nætur umhverfis musteri Guðs, því að þeir áttu að halda vörð, og á hverjum morgni áttu þeir að ljúka upp. |
28. | Og nokkrir þeirra áttu að sjá um þjónustuáhöldin. Skyldu þeir telja þau, er þeir báru þau út og inn. |
29. | Og nokkrir skyldu sjá um áhöldin, og það öll hin helgu áhöld, og hveitimjölið, vínið og olíuna, reykelsið og kryddjurtirnar, |
30. | og nokkrir af sonum prestanna skyldu gjöra smyrsl af kryddjurtunum, |
31. | en Mattitja, einum af levítum, frumgetningi Sallúms Kóraíta, var falinn pönnubaksturinn. |
32. | Og nokkrir af Kahatítum, bræðrum þeirra, skyldu sjá um raðsettu brauðin og leggja þau fram á hverjum hvíldardegi. |
33. | Söngvararnir, ætthöfðingjar levíta, búa í herbergjunum, lausir við önnur störf, því að þeir hafa starfs að gæta dag og nótt. |
34. | Þessir eru ætthöfðingjar levíta eftir ættum þeirra, höfðingjar. Þeir bjuggu í Jerúsalem. |
35. | Í Gíbeon bjuggu: Jeíel, faðir að Gíbeon, og kona hans hét Maaka. |
36. | Og frumgetinn sonur hans var Abdón, þá Súr, Kís, Baal, Ner, Nadab, |
37. | Gedór, Ahjó, Sakaría og Miklót. |
38. | En Miklót gat Símeam. Einnig þeir bjuggu andspænis bræðrum sínum, hjá bræðrum sínum í Jerúsalem. |
39. | Ner gat Kís og Kís gat Sál, og Sál gat Jónatan, Malkísúa, Abínadab og Esbaal. |
40. | Og sonur Jónatans var Meríbaal, og Meríbaal gat Míka. |
41. | Og synir Míka voru: Píton, Melek, Tahrea og Akas. |
42. | En Akas gat Jaera, Jaera gat Alemet, Asmavet og Simrí, en Simrí gat Mósa, |
43. | Mósa gat Bínea. Hans son var Refaja, hans son Eleasa, hans son Asel.En Asel átti sex sonu. Þeir hétu: Asríkam, Bokrú, Ísmael, Searja, Óbadía, Hanan. Þessir eru synir Asels. |
44. | En Asel átti sex sonu. Þeir hétu: Asríkam, Bokrú, Ísmael, Searja, Óbadía, Hanan. Þessir eru synir Asels. |
← 1Chronicles (9/29) → |