| ← 1Chronicles (7/29) → |
| 1. | Synir Íssakars: Tóla, Púa, Jasúb og Simron _ fjórir alls. |
| 2. | Synir Tóla: Ússí, Refaja, Jeríel, Jahemaí, Jíbsam og Samúel. Voru þeir höfðingjar í ættum sínum í Tóla, kappar miklir í ættum sínum; voru þeir á dögum Davíðs tuttugu og tvö þúsund og sex hundruð að tölu. |
| 3. | Synir Ússí voru: Jísrahja; synir Jísrahja: Míkael, Óbadía, Jóel, Jissía, alls fimm ætthöfðingjar. |
| 4. | Og til þeirra töldust eftir ættum þeirra, eftir frændliði þeirra, hermannasveitir, þrjátíu og sex þúsund manns, því að þeir áttu margar konur og börn. |
| 5. | Og frændur þeirra, allar ættir Íssakars, voru kappar miklir. Töldust þeir alls vera áttatíu og sjö þúsundir. |
| 6. | Synir Benjamíns: Bela, Beker, Jedíael _ þrír alls. |
| 7. | Og synir Bela: Esbón, Ússí, Ússíel, Jerímót og Írí, fimm alls. Voru þeir ætthöfðingjar og kappar miklir, og töldust þeir að vera tuttugu og tvö þúsund þrjátíu og fjórir. |
| 8. | Og synir Bekers: Semíra, Jóas, Elíeser, Eljóenaí, Omrí, Jeremót, Abía, Anatót og Alemet. Allir þessir voru synir Bekers. |
| 9. | Og þeir töldust eftir ættum sínum, ætthöfðingjum sínum, er voru kappar miklir, tuttugu þúsund og tvö hundruð. |
| 10. | Og synir Jedíaels: Bílhan; og synir Bílhans: Jeús, Benjamín, Ehúð, Kenaana, Setan, Tarsis og Ahísahar. |
| 11. | Allir þessir voru synir Jedíaels, ætthöfðingjar, kappar miklir, seytján þúsund og tvö hundruð vígra manna. |
| 12. | Súppím og Húppím voru synir Írs, en Húsím sonur Akers. |
| 13. | Synir Naftalí: Jahsíel, Gúní, Jeser og Sallúm, synir Bílu. |
| 14. | Synir Manasse: Asríel, er kona hans ól. Hin sýrlenska hjákona hans ól Makír, föður Gíleaðs. |
| 15. | Og Makír tók konu handa Húppím og Súppím, en systir hans hét Maaka. Hinn annar hét Selófhað, og Selófhað átti dætur. |
| 16. | Og Maaka, kona Makírs, ól son og nefndi hann Peres. En bróðir hans hét Seres, og synir hans voru Úlam og Rekem. |
| 17. | Og synir Úlams: Bedan. Þessir eru synir Gíleaðs Makírssonar, Manassesonar. |
| 18. | En Hammóleket systir hans ól Íshód, Abíeser og Mahela. |
| 19. | Og synir Semída voru: Ahjan, Sekem, Líkhí og Aníam. |
| 20. | Synir Efraíms: Sútela, hans son var Bered, hans son Tahat, hans son Eleada, hans son Tahat, |
| 21. | hans son Sóbad, hans son Sútela, Eser og Elead, en Gat-menn, þeir er fæddir voru í landinu, drápu þá, er þeir fóru til þess að ræna hjörðum þeirra. |
| 22. | Þá harmaði Efraím faðir þeirra lengi, og bræður hans komu til þess að hugga hann. |
| 23. | Og hann gekk inn til konu sinnar, og hún varð þunguð og ól son, og hann nefndi hann Bería, því að ógæfu hafði að borið í húsi hans. |
| 24. | En dóttir hans var Seera. Hún byggði neðri og efri Bet Hóron og Ússen Seera. |
| 25. | Og sonur hans var Refa og Resef. Hans son var Tela, hans son Tahan, |
| 26. | hans son Laedan, hans son Ammíhúd, hans son Elísama, |
| 27. | hans son Nún, hans son Jósúa. |
| 28. | Óðal þeirra og bústaðir voru: Betel og þorpin umhverfis, austur að Naaran og vestur að Geser og þorpunum umhverfis, enn fremur Síkem og þorpin umhverfis til Aja og þorpanna umhverfis. |
| 29. | Og í höndum Manassesona voru: Bet Sean og þorpin umhverfis, Taana og þorpin umhverfis, Megiddó og þorpin umhverfis, Dór og þorpin umhverfis. Þar bjuggu synir Jósefs, sonar Ísraels. |
| 30. | Synir Assers: Jímna, Jísva, Jísví og Bería, og systir þeirra var Seera. |
| 31. | Og synir Bería: Heber og Malkíel. Hann er faðir Birsaíts. |
| 32. | En Heber gat Jaflet, Semer, Hótam og Súu, systur þeirra. |
| 33. | Og synir Jaflets: Pasak, Bímehal og Asvat. Þessir voru synir Jaflets. |
| 34. | Og synir Semers: Ahí, Róhga, Húbba og Aram. |
| 35. | Og synir Helems, bróður hans: Sófa, Jímna, Seles og Amal. |
| 36. | Synir Sófa voru: Súa, Harnefer, Súal, Berí, Jímra, |
| 37. | Beser, Hód, Samma, Silsa, Jítran og Beera. |
| 38. | Og synir Jeters: Jefúnne, Pispa og Ara. |
| 39. | Og synir Úlla: Ara, Hanníel og Risja.Allir þessir voru synir Assers, ætthöfðingjar, frábærir kappar, höfðingjar meðal þjóðhöfðingja. Töldust þeir, er skráðir voru til herþjónustu, tuttugu og sex þúsundir manns. |
| 40. | Allir þessir voru synir Assers, ætthöfðingjar, frábærir kappar, höfðingjar meðal þjóðhöfðingja. Töldust þeir, er skráðir voru til herþjónustu, tuttugu og sex þúsundir manns. |
| ← 1Chronicles (7/29) → |