← 1Chronicles (4/29) → |
1. | Synir Júda: Peres, Hesron, Karmí, Húr og Sóbal. |
2. | En Reaja, sonur Sóbals, gat Jahat, Jahat gat Ahúmaí og Lahad. Þetta eru ættir Sóreatíta. |
3. | Þessir voru synir Etams: Jesreel, Jisma, Jídbas, en systir þeirra hét Haselelpóní. |
4. | Enn fremur Penúel, faðir Gedórs, og Eser, faðir Húsa. Þetta eru synir Húrs, frumburðar Efrata, föður að Betlehem. |
5. | Ashúr, faðir að Tekóa, átti tvær konur, Heleu og Naeru. |
6. | Og Naera ól honum Ahússam, Hefer, Temní og Ahastaríta. Þetta eru synir Naeru. |
7. | Og synir Heleu voru: Seret, Jísehar og Etnam. |
8. | En Kós gat Anúb, Sóbeba og ættir Aharhels, sonar Harúms. |
9. | En Jaebes var fyrir bræðrum sínum, og móðir hans nefndi hann Jaebes og mælti: ,,Ég hefi alið hann með harmkvælum.`` |
10. | Og Jaebes ákallaði Guð Ísraels og mælti: ,,Blessa þú mig og auk landi við mig, og verði hönd þín með mér, og bæg þú ógæfunni frá mér, svo að engin harmkvæli komi yfir mig.`` Og Guð veitti honum það, sem hann bað um. |
11. | En Kelúb, bróðir Súha, gat Mehír. Hann er faðir Estóns. |
12. | En Estón gat Bet Rafa, Pasea og Tehinna, föður að borg Nahasar; þetta eru Rekamenn. |
13. | Synir Kenas: Otníel og Seraja. Og synir Otníels: Hatat. |
14. | En Meonotaí gat Ofra, og Seraja gat Jóab, föður að Smiðadal, því að þeir voru smiðir. |
15. | Synir Kalebs Jefúnnesonar: Írú, Ela og Naam; synir Ela: Kenas. |
16. | Synir Jehalelels: Síf, Sífa, Tirja og Asareel. |
17. | Synir Esra: Jeter, Mered, Efer og Jalon. Og þessir eru synir Bitju, dóttur Faraós, er gekk að eiga Mered: Hún ól Mirjam, Sammaí og Jísba, föður Estemóa. |
18. | En kona hans, er var frá Júda, ól Jered, föður að Gedór, og Heber, föður að Sókó, og Jekútíel, föður að Sanóa. |
19. | Synir konu Hódía, systur Nahams: faðir Kegílu, Garmíta, Estemóa og Maakatíta. |
20. | Synir Símons: Amnon, Rinna, Ben Hanan og Tílon; og synir Jíseí: Sóhet og sonur Sóhets. |
21. | Synir Sela, sonar Júda: Ger, faðir Leka, Laeda, faðir Maresa, og ættir baðmullarverkmannanna frá Bet Asbea, |
22. | enn fremur Jókím og mennirnir frá Kóseba, Jóas og Saraf, er unnu Móab og Jasúbí Lehem. Þetta eru fornar sögur. |
23. | Þeir voru leirkerasmiðir og byggðu Netaím og Gedera. Hjá konungi, við þjónustu hans, þar bjuggu þeir. |
24. | Synir Símeons: Nemúel, Jamín, Jaríb, Sera, Sál. |
25. | Hans sonur var Sallúm, hans son Mibsam, hans son Misma. |
26. | Og synir Misma voru: Hammúel, sonur hans, hans son Sakkúr, hans son Símeí. |
27. | Símeí átti sextán sonu og sex dætur, en bræður hans áttu eigi margt barna, og ætt þeirra varð eigi svo fjölmenn sem Júdamenn. |
28. | Þeir bjuggu í Beerseba, Mólada, Hasar Súal, |
29. | Bílha, Esem, Tólad, |
30. | Betúel, Harma, Siklag, |
31. | Bet Markabót, Hasar Súsím, Bet Bíreí og Saaraím. Þetta voru borgir þeirra, þangað til Davíð tók ríki. |
32. | Og þorp þeirra voru: Etam, Ain, Rimmon, Tóken og Asan _ fimm borgir, |
33. | og auk þess öll þau þorp, er lágu kringum borgir þessar, allt til Baal. Þetta voru bústaðir þeirra, og höfðu þeir ættartal fyrir sig. |
34. | Mesóbab, Jamlek, Jósa, sonur Amasja, |
35. | Jóel, Jehú, sonur Jósíbja, Serajasonar, Asíelssonar, |
36. | og Eljóenaí, Jaakoba, Jesóhaja, Asaja, Adíel, Jesímíel og Benaja, |
37. | Sísa, sonur Sífeí, Allonssonar, Jedajasonar, Simrísonar, Semajasonar; |
38. | þessir menn sem hér eru nafngreindir, voru höfðingjar í ættum sínum, og hafa ættir þeirra orðið mjög fjölmennar. |
39. | Og þeir fóru þaðan, er leið liggur til Gedór, allt þar til kemur austur fyrir dalinn, til þess að leita haglendis fyrir sauði sína. |
40. | Og þeir fundu feitt og gott haglendi, og landrými var þar mikið, og rólegt var þar og friðsamlegt, því að þeir, er áður höfðu byggt þar, voru komnir af Kam. |
41. | Þá komu þeir, sem hér eru nafngreindir, á dögum Hiskía Júdakonungs, eyddu tjöldum þeirra og drápu Meúníta, sem þar voru, og gjöreyddu þeim allt fram á þennan dag og bjuggu þar eftir þá, því að þar var haglendi fyrir sauði þeirra. |
42. | Og af þeim Símeonsniðjum fóru fimm hundruð manns til Seírfjalla, og voru þeir Pelatja, Nearja, Refaja og Ússíel, synir Jíseí, fyrir þeim.Drápu þeir hinar síðustu leifar Amalekíta og bjuggu þar allt fram á þennan dag. |
43. | Drápu þeir hinar síðustu leifar Amalekíta og bjuggu þar allt fram á þennan dag. |
← 1Chronicles (4/29) → |