← 1Chronicles (27/29) → |
1. | Þessir eru Ísraelsmenn eftir tölu þeirra, ætthöfðingjar, þúsundhöfðingjar, hundraðshöfðingjar og starfsmenn þeirra, er þjónuðu konungi í öllum flokkastörfum, er komu og fóru mánuð eftir mánuð, alla mánuði ársins. Voru í flokki hverjum tuttugu og fjögur þúsund manns. |
2. | Yfir fyrsta flokki, í fyrsta mánuði, var Jasóbeam Sabdíelsson, og voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans. |
3. | Var hann af Peresniðjum og fyrir öllum herforingjum í fyrsta mánuði. |
4. | Yfir flokki annars mánaðarins var Eleasar Dódaíson, Ahóhíti. Fyrir flokki hans var höfðinginn Miklót, og voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans. |
5. | Þriðji hershöfðinginn, í þriðja mánuðinum, var Benaja, sonur Jójada prests, höfðingi, og voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans. |
6. | Var Benaja þessi kappi meðal þeirra þrjátíu og fyrir þeim þrjátíu. Var Ammísabad sonur hans fyrir flokki hans. |
7. | Fjórði var Asahel, bróðir Jóabs, fjórða mánuðinn, og eftir hann Sebadja sonur hans. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans. |
8. | Fimmti hershöfðinginn var Samhút Jísraíti, fimmta mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans. |
9. | Sjötti var Íra Íkkesson frá Tekóa, sjötta mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans. |
10. | Sjöundi var Heles Pelóníti af Efraímsniðjum, sjöunda mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans. |
11. | Áttundi var Sibbekaí Húsatíti af Seraítum, áttunda mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans. |
12. | Níundi var Abíeser frá Anatót af Benjamínsniðjum, níunda mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans. |
13. | Tíundi var Maharaí frá Netófa af Seraítum, tíunda mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans. |
14. | Ellefti var Benaja frá Píraton af Efraímsniðjum, ellefta mánuðinn. Voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans. |
15. | Tólfti var Heldaí frá Netófa af ætt Otníels, tólfta mánuðinn, og voru tuttugu og fjögur þúsund manns í flokki hans. |
16. | Þessir voru yfir kynkvíslum Ísraels: Af Rúbensniðjum var höfðingi Elíeser Síkríson. Af Símeonsniðjum Sefatja Maakason. |
17. | Af Leví Hasabja Kemúelsson. Af Aron Sadók. |
18. | Af Júda Elíhú, einn af bræðrum Davíðs. Af Íssakar Omrí Míkaelsson. |
19. | Af Sebúlon Jismaja Óbadíason. Af Naftalí Jerímót Asríelsson. |
20. | Af Efraímsniðjum Hósea Asasjason. Af hálfri Manassekynkvísl Jóel Pedajason. |
21. | Af hálfri Manassekynkvísl í Gíleað Íddó Sakaríason. Af Benjamín Jaasíel Abnersson. |
22. | Af Dan Asareel Jeróhamsson. Þessir voru höfðingjar Ísraelskynkvísla. |
23. | En Davíð lét ekki telja þá, er yngri voru en tvítugir, því að Drottinn hafði heitið því að gjöra Ísraelsmenn marga sem stjörnur himins. |
24. | Hafði Jóab Serújuson byrjað á að telja, en eigi lokið við, því að sakir þessa kom reiði yfir Ísrael, og talan var eigi skráð með tölunum í árbókum Davíðs konungs. |
25. | Asmavet Adíelsson hafði umsjón með fjársjóðum konungs og Jónatan Ússíasson með eignunum á mörkinni, í borgunum, þorpunum og köstulunum. |
26. | Esrí Kelúbsson hafði umsjón með jarðyrkjumönnum, er störfuðu að akuryrkju, |
27. | Símeí frá Rama yfir víngörðunum, og Sabdí Sifmíti yfir vínforðanum í víngörðunum, |
28. | Baal Hanan frá Geder yfir olíutrjánum og mórberjatrjánum á láglendinu og Jóas yfir olíuforðanum. |
29. | Yfir nautunum, er gengu á Saron, hafði Sítraí frá Saron umsjón, yfir nautunum, er gengu í dölunum, Safat Adlaíson, |
30. | yfir úlföldunum Óbíl Ísmaelíti, yfir ösnunum Jehdeja frá Merónót, |
31. | yfir sauðfénaðinum Jasis Hagríti. Allir þessir voru umráðamenn yfir eignum Davíðs konungs. |
32. | Jónatan, föðurbróðir Davíðs, var ráðgjafi. Var hann vitur maður og fróður. Jehíel Hakmóníson var með sonum konungs, |
33. | Akítófel var ráðgjafi konungs og Húsaí Arkíti var stallari konungs.Næstur Akítófel gekk Jójada Benajason og Abjatar. Jóab var hershöfðingi konungs. |
34. | Næstur Akítófel gekk Jójada Benajason og Abjatar. Jóab var hershöfðingi konungs. |
← 1Chronicles (27/29) → |