← 1Chronicles (2/29) → |
1. | Þessir voru synir Ísraels: Rúben, Símeon, Leví og Júda, Íssakar og Sebúlon, |
2. | Dan, Jósef og Benjamín, Naftalí, Gað og Asser. |
3. | Synir Júda: Ger, Ónan og Sela, þrír að tölu, er dóttir Súa, kanverska konan, ól honum. En Ger, frumgetinn sonur Júda, var vondur fyrir augliti Drottins, svo að Drottinn lét hann deyja. |
4. | Tamar tengdadóttir hans ól honum Peres og Sera. Synir Júda voru alls fimm. |
5. | Synir Peres: Hesron og Hamúl. |
6. | Synir Sera: Simrí, Etan, Heman, Kalkól og Dara _ fimm alls. |
7. | Synir Karmí: Akar, sá er steypti Ísrael í ógæfu með því að fara sviksamlega með hið bannfærða. |
8. | Og synir Etans: Asarja. |
9. | Og synir Hesrons, er fæddust honum: Jerahmeel, Ram og Kelúbaí. |
10. | Ram gat Ammínadab, og Ammínadab gat Nahson, höfuðsmann Júdamanna. |
11. | Nahson gat Salma, Salma gat Bóas, |
12. | Bóas gat Óbeð, Óbeð gat Ísaí. |
13. | Ísaí gat Elíab frumgetning sinn, þá Abínadab, Símea hinn þriðja, |
14. | Netaneel hinn fjórða, Raddaí hinn fimmta, |
15. | Ósem hinn sjötta, Davíð hinn sjöunda. |
16. | Og systur þeirra voru þær Serúja og Abígail, og synir Serúju voru: Abísaí, Jóab og Asahel, þrír að tölu. |
17. | En Abígail ól Amasa, og faðir Amasa var Jeter Ísmaelíti. |
18. | Kaleb, sonur Hesrons, gat börn við Asúbu konu sinni og við Jeríót. Þessir voru synir hennar: Jeser, Sóbab og Ardon. |
19. | Og er Asúba andaðist, gekk Kaleb að eiga Efrat og ól hún honum Húr, |
20. | en Húr gat Úrí og Úrí gat Besaleel. |
21. | Síðan gekk Hesron inn til dóttur Makírs, föður Gíleaðs, og tók hana sér fyrir konu. Var hann þá sextíu ára gamall. Hún ól honum Segúb. |
22. | Og Segúb gat Jaír. Hann átti tuttugu og þrjár borgir í Gíleaðlandi. |
23. | En Gesúrítar og Sýrlendingar tóku Jaírs-þorp frá þeim, Kenat og þorpin þar í kring, sextíu borgir alls. Allir þessir voru niðjar Makírs, föður Gíleaðs. |
24. | Og eftir andlát Hesrons í Kaleb Efrata ól Abía kona hans honum Ashúr, föður Tekóa. |
25. | Synir Jerahmeels, frumgetins sonar Hesrons: Ram, frumgetningurinn, og Búna, Óren, Ósem og Ahía. |
26. | En Jerahmeel átti aðra konu, er Atara hét. Hún var móðir Ónams. |
27. | Synir Rams, frumgetins sonar Jerahmeels: Maas, Jamín og Eker. |
28. | Og synir Ónams voru: Sammaí og Jada; og synir Sammaí: Nadab og Abísúr. |
29. | En kona Abísúrs hét Abíhaíl. Hún ól honum Akban og Mólíd. |
30. | Og synir Nadabs voru: Seled og Appaím, en Seled dó barnlaus. |
31. | Og synir Appaíms: Jíseí, og synir Jíseí: Sesan, og synir Sesans: Ahelaí. |
32. | Og synir Jada, bróður Sammaí: Jeter og Jónatan, en Jeter dó barnlaus. |
33. | Og synir Jónatans voru: Pelet og Sasa. Þessir voru niðjar Jerahmeels. |
34. | Og Sesan átti enga sonu, heldur dætur einar. En Sesan átti egypskan þræl, er Jarha hét. |
35. | Og Sesan gaf Jarha þræli sínum dóttur sína fyrir konu, og hún ól honum Attaí. |
36. | Og Attaí gat Natan, Natan gat Sabat, |
37. | Sabat gat Eflal, Eflal gat Óbeð, |
38. | Óbeð gat Jehú, Jehú gat Asarja, |
39. | Asarja gat Heles, Heles gat Eleasa, |
40. | Eleasa gat Sísemaí, Sísemaí gat Sallúm, |
41. | Sallúm gat Jekamja og Jekamja gat Elísama. |
42. | Synir Kalebs, bróður Jerahmeels: Mesa, frumgetinn sonur hans _ hann var faðir Sífs _ svo og synir Maresa, föður Hebrons. |
43. | Synir Hebrons voru: Kóra, Tappúa, Rekem og Sema. |
44. | Og Sema gat Raham, föður Jorkeams, og Rekem gat Sammaí. |
45. | En sonur Sammaí var Maon, og Maon var faðir að Bet Súr. |
46. | Og Efa, hjákona Kalebs, ól Haran, Mósa og Gases, en Haran gat Gases. |
47. | Synir Jehdaí: Regem, Jótam, Gesan, Pelet, Efa og Saaf. |
48. | Maaka, hjákona Kalebs, ól Seber og Tírkana. |
49. | Og enn ól hún Saaf, föður Madmanna, Sefa, föður Makbena og föður Gíbea, en dóttir Kalebs var Aksa. |
50. | Þessir voru synir Kalebs. Synir Húrs, frumgetins sonar Efrata: Sóbal, faðir að Kirjat Jearím, |
51. | Salma, faðir að Betlehem, Haref, faðir að Bet Gader. |
52. | Og Sóbal, faðir að Kirjat Jearím, átti fyrir sonu: Haróe, hálft Menúhót |
53. | og ættirnar frá Kirjat Jearím, svo og Jítríta, Pútíta, Súmatíta og Mísraíta. Frá þeim eru komnir Sóreatítar og Estaólítar. |
54. | Synir Salma: Betlehem og Netófatítar, Atarót, Bet Jóab og helmingur Manatíta, það er Sóreíta,og ættir fræðimannanna, er búa í Jabes, Tíreatítar, Símeatítar og Súkatítar. Þetta eru Kínítar, er komnir eru frá Hammat, föður Rekabs ættar. |
55. | og ættir fræðimannanna, er búa í Jabes, Tíreatítar, Símeatítar og Súkatítar. Þetta eru Kínítar, er komnir eru frá Hammat, föður Rekabs ættar. |
← 1Chronicles (2/29) → |