← 1Chronicles (18/29) → |
1. | Eftir þetta vann Davíð sigur á Filistum og braut þá undir sig, og náði Gat og borgunum umhverfis hana úr höndum Filista. |
2. | Hann vann og sigur á Móabítum, og þannig urðu Móabítar skattskyldir þegnar Davíðs. |
3. | Davíð vann og sigur á Hadareser, konungi í Sóba, er liggur á leið til Hamat, þá er hann fór leiðangur til að festa ríki sitt við Efratfljót. |
4. | Vann Davíð af honum þúsund vagna, sjö þúsund riddara og tuttugu þúsundir fótgönguliðs. Lét Davíð skera sundur hásinarnar á öllum stríðshestunum og hélt aðeins einu hundraði eftir. |
5. | Þegar Sýrlendingar frá Damaskus komu til liðs við Hadareser, konung í Sóba, þá felldi Davíð tuttugu og tvö þúsund manns af Sýrlendingum. |
6. | Og Davíð setti landstjóra á Sýrlandi, því er kennt er við Damaskus, og urðu Sýrlendingar skattskyldir þegnar Davíðs. Þannig veitti Drottinn Davíð sigur, hvert sem hann fór. |
7. | Davíð tók og hina gullnu skjöldu, er þjónar Hadaresers höfðu borið, og flutti til Jerúsalem. |
8. | Auk þess tók Davíð afar mikið af eiri í Teba og Kún, borgum Hadaresers. Af því gjörði Salómon eirhafið, súlurnar og eiráhöldin. |
9. | Þegar Tóú, konungur í Hamat, frétti að Davíð hefði lagt að velli allan her Hadaresers, konungs í Sóba, |
10. | þá sendi Tóú Hadóram son sinn á fund Davíðs konungs til þess að heilsa á hann og árna honum heilla, er hann hafði barist við Hadareser og unnið sigur á honum, því að Tóú átti í ófriði við Hadareser. Og með honum sendi hann alls konar gripi af gulli, silfri og eiri. |
11. | Gripina helgaði Davíð konungur einnig Drottni, ásamt silfri því og gulli, er hann hafði haft á burt frá öllum þjóðum: frá Edóm, Móab, Ammónítum, Filistum og Amalek. |
12. | Og Abísaí Serújuson vann sigur á Edómítum í Saltdalnum, átján þúsundum manns. |
13. | Og hann setti landstjóra í Edóm, og allir Edómítar urðu þegnar Davíðs. En Drottinn veitti Davíð sigur, hvert sem hann fór. |
14. | Og Davíð ríkti yfir öllum Ísrael og lét alla þjóð sína njóta laga og réttar. |
15. | Jóab Serújuson var fyrir hernum og Jósafat Ahílúðsson var ríkisritari, |
16. | Sadók Ahítúbsson og Abímelek Abjatarsson voru prestar og Savsa kanslari.Benaja Jójadason var fyrir Kretum og Pletum, og synir Davíðs voru hinir fyrstu við hönd konungi. |
17. | Benaja Jójadason var fyrir Kretum og Pletum, og synir Davíðs voru hinir fyrstu við hönd konungi. |
← 1Chronicles (18/29) → |