← 1Chronicles (14/29) → |
1. | Híram, konungur í Týrus, gjörði menn á fund Davíðs og sendi honum sedrustré, steinhöggvara og trésmiði til þess að reisa höll handa honum. |
2. | Davíð kannaðist þá við, að Drottinn hefði staðfest konungdóm hans yfir Ísrael, að konungdómur sinn væri hátt upp hafinn fyrir sakir þjóðar hans, Ísraels. |
3. | Davíð tók sér enn konur í Jerúsalem, og Davíð gat enn sonu og dætur. |
4. | Þetta eru nöfn þeirra sona, sem hann eignaðist í Jerúsalem: Sammúa, Sóbab, Natan, Salómon, |
5. | Jíbhar, Elísúa, Elpelet, |
6. | Nóga, Nefeg, Jafía, |
7. | Elísama, Beeljada og Elífelet. |
8. | Þegar Filistar heyrðu, að Davíð væri smurður til konungs yfir allan Ísrael, lögðu allir Filistar af stað að leita Davíðs. Og er Davíð frétti það, fór hann í móti þeim. |
9. | Og Filistar komu og dreifðu sér um Refaímdal. |
10. | Þá gekk Davíð til frétta við Guð og sagði: ,,Á ég að fara móti Filistum? Munt þú gefa þá í hendur mér?`` Drottinn svaraði honum: ,,Far þú, ég mun gefa þá í hendur þér.`` |
11. | Héldu þeir þá til Baal Perasím. Og Davíð vann þar sigur á þeim, og Davíð sagði: ,,Guð hefir látið mig skola burt óvinum mínum, eins og þegar vatn ryður sér rás.`` Fyrir því var sá staður nefndur Baal Perasím. |
12. | En þeir létu þar eftir guði sína, og voru þeir brenndir á báli að boði Davíðs. |
13. | Filistar komu aftur og dreifðu sér um dalinn. |
14. | Þá gekk Davíð enn til frétta við Guð, og Guð svaraði honum: ,,Far þú eigi í móti þeim. Far þú í bug og kom að baki þeim og ráð á þá fram undan bakatrjánum. |
15. | Og þegar þú heyrir þyt af ferð í krónum bakatrjánna, þá skalt þú leggja til orustu, því að þá fer Guð fyrir þér til þess að ljósta her Filista.`` |
16. | Og Davíð gjörði eins og Guð bauð honum og vann sigur á her Filista frá Gíbeon til Geser.Og frægð Davíðs barst um öll lönd, og Drottinn lét ótta við hann koma yfir allar þjóðir. |
17. | Og frægð Davíðs barst um öll lönd, og Drottinn lét ótta við hann koma yfir allar þjóðir. |
← 1Chronicles (14/29) → |