← 1Chronicles (12/29) → |
1. | Þessir eru þeir, er komu til Davíðs í Siklag, er hann var landflótta fyrir Sál Kíssyni. Voru og þeir meðal kappanna, er veittu honum vígsgengi. |
2. | Höfðu þeir boga að vopni og voru leiknir að slöngva steinum með hægri og vinstri hendi og að skjóta örvum af boga: Af frændum Sáls, af Benjamínítum: |
3. | Ahíeser höfuðsmaður og Jóas, Hassemaasynir frá Gíbeu, Jesíel og Pelet Asmavetssynir, Beraka og Jehú frá Anatót, |
4. | Jismaja frá Gíbeon, kappi meðal þeirra þrjátíu og foringi þeirra þrjátíu, Jeremía, Jehasíel, Jóhanan og Jósabad frá Gedera, |
5. | Elúsaí, Jerímót, Bealja, Semarja og Sefatja frá Haríf, |
6. | Elkana, Jissía, Asareel, Jóeser og Jasóbeam Kóraítar, |
7. | Jóela og Sebadja Jeróhamssynir frá Gedór. |
8. | Af Gaðítum gengu kappar miklir, hermenn, búnir til bardaga, er skjöld báru og spjót, í lið með Davíð í fjallvíginu í eyðimörkinni. Voru þeir ásýndum sem ljón og fráir sem skógargeitur á fjöllum. |
9. | Var Eser höfðingi þeirra, annar var Óbadía, þriðji Elíab, |
10. | fjórði Mismanna, fimmti Jeremía, |
11. | sjötti Attaí, sjöundi Elíel, |
12. | áttundi Jóhanan, níundi Elsabad, |
13. | tíundi Jeremía, ellefti Makbannaí. |
14. | Þessir voru af niðjum Gaðs, og voru þeir hershöfðingjar. Var hinn minnsti þeirra einn saman hundrað manna maki, en hinn mesti þúsund. |
15. | Þessir voru þeir, er fóru yfir Jórdan í fyrsta mánuðinum, er hún flóði yfir alla bakka, og stökktu burt öllum dalbyggjum til austurs og vesturs. |
16. | En nokkrir af Benjamíns- og Júdaniðjum komu til Davíðs í fjallvígið. |
17. | Gekk Davíð þá út til þeirra, tók til máls og sagði við þá: ,,Ef þér komið til mín með friði til þess að veita mér lið, þá vil ég fúslega gjöra bandalag við yður, en ef þér komið til að svíkja mig í hendur óvinum mínum, þótt ég hafi ekkert illt aðhafst, þá sjái Guð feðra vorra það og hegni.`` |
18. | Þá kom andi yfir Amasaí, höfðingja fyrir hinum þrjátíu, og mælti hann: ,,Þínir erum vér, Davíð, og með þér, þú Ísaísonur. Heill, heill sé þér, og heill liðsmönnum þínum, því að Guð þinn hjálpar þér.`` Tók þá Davíð við þeim og gjörði þá að foringjum fyrir sveit sinni. |
19. | Af Manasse gengu í lið með Davíð, þá er hann fór með Filistum til bardaga við Sál _ þó liðsinntu þeir þeim ekki, því að höfðingjar Filista réðu ráðum sínum, sendu hann burt og sögðu: ,,Hann kynni að ganga í lið með Sál, herra sínum, og gæti það orðið vor bani`` _ |
20. | þegar hann kom til Siklag, þá gengu í lið með honum af Manasse: Adna, Jósabad, Jedíael, Míkael, Jósabad, Elíhú og Silletaí, þúsundhöfðingjar Manasse. |
21. | Veittu þessir Davíð lið gegn ræningjaflokkum, því að allir voru þeir kappar miklir, og urðu þeir foringjar í hernum. |
22. | Því að dag frá degi komu menn til liðs við Davíð, uns herinn var mikill orðinn sem guðsher. |
23. | Þetta er manntal á höfðingjum þeirra hertygjaðra manna, er komu til Davíðs í Hebron til þess að fá honum í hendur konungdóm Sáls eftir boði Drottins: |
24. | Júdamenn, er skjöld báru og spjót, voru 6.800 herbúinna manna. |
25. | Af Símeonsniðjum 7.100 hraustir hermenn. |
26. | Af Levíniðjum: 4.600 |
27. | og auk þess Jójada, höfðingi Aronsættar, og 3.700 manns með honum. |
28. | Og Sadók, ungur maður, hinn mesti kappi. Voru 22 herforingjar í ætt hans. |
29. | Af Benjamínsniðjum, frændum Sáls, voru 3.000, en allt til þessa héldu flestir þeirra trúnað við ætt Sáls. |
30. | Af Efraímsniðjum 20.800 nafnkunnra manna í ættum sínum. |
31. | Af hálfri Manassekynkvísl 18.000 manna, er nafngreindir voru til þess að fara og taka Davíð til konungs. |
32. | Af Íssakarsniðjum, er báru skyn á tíðir og tíma, svo að þeir vissu, hvað Ísrael skyldi hafast að, 200 höfðingjar, og lutu allir frændur þeirra boði þeirra. |
33. | Af Sebúlon gengu í herinn 50.000 vígra manna, er höfðu alls konar hervopn, allir með einum huga til þess að hjálpa. |
34. | Af Naftalí fóru þúsund höfðingjar og með þeim 37.000 manna, er skjöld báru og spjót. |
35. | Af Dansniðjum 28.600 manna, er búnir voru til bardaga. |
36. | Af Asser gengu í herinn 40.000 vígra manna. |
37. | Af þeim hinumegin Jórdanar, af Rúbensniðjum, Gaðsniðjum og hálfri ættkvísl Manasse: 120.000 manna, með alls konar vopn til hernaðar. |
38. | Allir þessir hermenn, er skipaðir voru í fylkingu, komu samhuga til Hebron til þess að taka Davíð til konungs yfir allan Ísrael. Voru og allir aðrir Ísraelsmenn samhuga í því að taka Davíð til konungs. |
39. | Og þeir dvöldust þar þrjá daga hjá Davíð og neyttu matar og drykkjar, því að frændur þeirra höfðu búið þeim beina.Auk þess færðu þeir, er bjuggu í nágrenni við þá, allt að Íssakar, Sebúlon og Naftalí, vistir á ösnum, úlföldum, múlum og nautum, mjölmat, fíkjukökur, rúsínukökur, vín, olíu og naut og sauði í ríkum mæli, því að gleði var í Ísrael. |
40. | Auk þess færðu þeir, er bjuggu í nágrenni við þá, allt að Íssakar, Sebúlon og Naftalí, vistir á ösnum, úlföldum, múlum og nautum, mjölmat, fíkjukökur, rúsínukökur, vín, olíu og naut og sauði í ríkum mæli, því að gleði var í Ísrael. |
← 1Chronicles (12/29) → |