Psalms (87/150)  

1. Kóraíta-sálmur. Ljóð.
2. Drottinn grundvallaði borg sína á heilögum fjöllum, hann elskar hlið Síonar framar öllum bústöðum Jakobs.
3. Dýrlega er talað um þig, þú borg Guðs. [Sela]
4. Ég nefni Egyptaland og Babýlon vegna játenda minna þar, hér er Filistea og Týrus, ásamt Blálandi, einn er fæddur hér, annar þar.
5. En Síon kallast móðirin, hver þeirra er fæddur í henni, og hann, Hinn hæsti, verndar hana.
6. Drottinn telur saman í þjóðaskránum, einn er fæddur hér, annar þar. [Sela]Og menn syngja eins og þeir er stíga dans: ,,Allar uppsprettur mínar eru í þér.``
7. Og menn syngja eins og þeir er stíga dans: ,,Allar uppsprettur mínar eru í þér.``

  Psalms (87/150)