Psalms (67/150)  

1. Til söngstjórans. Með strengjaleik. Sálmur. Ljóð.
2. Guð sé oss náðugur og blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor, [Sela]
3. svo að þekkja megi veg þinn á jörðunni og hjálpræði þitt meðal allra þjóða.
4. Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa.
5. Gleðjast og fagna skulu þjóðirnar, því að þú dæmir lýðina réttvíslega og leiðir þjóðirnar á jörðunni. [Sela]
6. Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa.Jörðin hefir gefið ávöxt sinn, Guð, vor Guð, blessar oss. [ (Psalms 67:8) Guð blessi oss, svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann. ]
7. Jörðin hefir gefið ávöxt sinn, Guð, vor Guð, blessar oss. [ (Psalms 67:8) Guð blessi oss, svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann. ]

  Psalms (67/150)