Psalms (4/150)  

1. Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2. Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti, rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3. Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4. Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð, að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5. Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6. Færið réttar fórnir og treystið Drottni.
7. Margir segja: ,,Hver lætur oss hamingju líta?`` Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.Þú hefir veitt hjarta mínu meiri gleði en menn hafa af gnægð korns og vínlagar. [ (Psalms 4:9) Í friði leggst ég til hvíldar og sofna, því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum. ]
8. Þú hefir veitt hjarta mínu meiri gleði en menn hafa af gnægð korns og vínlagar. [ (Psalms 4:9) Í friði leggst ég til hvíldar og sofna, því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum. ]

  Psalms (4/150)