Psalms (39/150)  

1. Til söngstjórans, eftir Jedútún. Davíðssálmur.
2. Ég sagði: ,,Ég vil gefa gætur að vegum mínum, að ég drýgi eigi synd með tungunni, ég vil leggja haft á munn minn, meðan hinn illgjarni er í nánd við mig.``
3. Ég var hljóður og þagði, en kvöl mín ýfðist.
4. Hjartað brann í brjósti mér, við andvörp mín logaði eldurinn upp, ég sagði:
5. ,,Lát mig, Drottinn, sjá afdrif mín og hvað mér er útmælt af dögum, lát mig sjá, hversu skammær ég er.
6. Sjá, örfáar þverhendur hefir þú gjört daga mína, og ævi mín er sem ekkert fyrir þér. Andgustur einn eru allir menn. [Sela]
7. Sem tómur skuggi gengur maðurinn um, gjörir háreysti um hégómann einan, hann safnar í hrúgur, en veit eigi hver þær hlýtur.``
8. Hvers vona ég þá, Drottinn? Von mín er öll á þér.
9. Frelsa mig frá öllum syndum mínum, lát mig eigi verða heimskingjum að spotti.
10. Ég þegi, ég opna eigi munninn, því að þú hefir talað.
11. Lát plágu þína víkja frá mér, ég verð að engu fyrir krafti handar þinnar.
12. Þá er þú beitir hirtingu við manninn fyrir misgjörð hans, lætur þú yndisleik hans eyðast, sem mölur væri. Andgustur einn eru allir menn. [Sela]Heyr bæn mína, Drottinn, og hlýð á kvein mitt, ver eigi hljóður við tárum mínum, því að ég er aðkomandi hjá þér, útlendingur eins og allir feður mínir. [ (Psalms 39:14) Lít af mér, svo að hýrna megi yfir mér, áður en ég fer burt og er eigi til framar. ]
13. Heyr bæn mína, Drottinn, og hlýð á kvein mitt, ver eigi hljóður við tárum mínum, því að ég er aðkomandi hjá þér, útlendingur eins og allir feður mínir. [ (Psalms 39:14) Lít af mér, svo að hýrna megi yfir mér, áður en ég fer burt og er eigi til framar. ]

  Psalms (39/150)