Psalms (36/150)  

1. Til söngstjórans. Eftir Davíð, þjón Drottins.
2. Rödd syndarinnar talar til hins guðlausa í fylgsnum hjarta hans, enginn guðsótti býr í huga hans.
3. Hún smjaðrar fyrir honum í augum hans og misgjörð hans verður uppvís og hann verður fyrir hatri.
4. Orðin af munni hans eru tál og svik, hann er hættur að vera hygginn og breyta vel.
5. Í hvílu sinni hyggur hann á tál, hann fetar vonda vegu, forðast eigi hið illa.
6. Drottinn, til himna nær miskunn þín, til skýjanna trúfesti þín.
7. Réttlæti þitt er sem fjöll Guðs, dómar þínir sem reginhaf. Mönnum og skepnum hjálpar þú, Drottinn.
8. Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð, mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna.
9. Þau seðjast af feiti húss þíns, og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðsemda þinna.
10. Hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós.
11. Lát miskunn þína haldast við þá er þekkja þig, og réttlæti þitt við þá sem hjartahreinir eru.Lát eigi fót hins hrokafulla troða á mér né hönd óguðlegra hrekja mig burt. [ (Psalms 36:13) Þar eru illgjörðamennirnir fallnir, þeim er varpað um koll og þeir fá eigi risið upp aftur. ]
12. Lát eigi fót hins hrokafulla troða á mér né hönd óguðlegra hrekja mig burt. [ (Psalms 36:13) Þar eru illgjörðamennirnir fallnir, þeim er varpað um koll og þeir fá eigi risið upp aftur. ]

  Psalms (36/150)