Psalms (3/150)  

1. Sálmur Davíðs, þá er hann flýði fyrir Absalon syni sínum.
2. Drottinn, hversu margir eru mótstöðumenn mínir, margir eru þeir er rísa upp í móti mér.
3. Margir segja um mig: ,,Hann fær enga hjálp hjá Guði!`` [Sela]
4. En þú, Drottinn, ert hlífiskjöldur minn, þú ert sæmd mín og lætur mig bera höfuð mitt hátt.
5. Þá er ég hrópa til Drottins, svarar hann mér frá fjallinu sínu helga. [Sela]
6. Ég leggst til hvíldar og sofna, ég vakna aftur, því að Drottinn hjálpar mér.
7. Ég óttast eigi hinn óteljandi manngrúa, er fylkir sér gegn mér á allar hliðar.Rís þú upp, Drottinn, hjálpa mér, Guð minn, því að þú hefir lostið fjandmenn mína kinnhest, brotið tennur illvirkjanna. [ (Psalms 3:9) Hjá Drottni er hjálpin, blessun þín komi yfir lýð þinn! [Sela] ]
8. Rís þú upp, Drottinn, hjálpa mér, Guð minn, því að þú hefir lostið fjandmenn mína kinnhest, brotið tennur illvirkjanna. [ (Psalms 3:9) Hjá Drottni er hjálpin, blessun þín komi yfir lýð þinn! [Sela] ]

  Psalms (3/150)