Psalms (149/150)  

1. Halelúja. Syngið Drottni nýjan söng, lofsöngur hans hljómi í söfnuði trúaðra.
2. Ísrael gleðjist yfir skapara sínum, synir Síonar fagni yfir konungi sínum.
3. Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi, leika fyrir honum á bumbur og gígjur.
4. Því að Drottinn hefir þóknun á lýð sínum, hann skrýðir hrjáða með sigri.
5. Hinir trúuðu skulu gleðjast með sæmd, syngja fagnandi í hvílum sínum
6. með lofgjörð Guðs á tungu og tvíeggjað sverð í höndum
7. til þess að framkvæma hefnd á þjóðunum, hirtingu á lýðunum,
8. til þess að binda konunga þeirra með fjötrum, þjóðhöfðingja þeirra með járnhlekkjum,til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Halelúja.
9. til þess að fullnægja á þeim skráðum dómi. Það er til vegsemdar öllum dýrkendum hans. Halelúja.

  Psalms (149/150)