Psalms (129/150)  

1. Þeir hafa fjandskapast mjög við mig frá æsku, _ skal Ísrael segja _
2. þeir hafa fjandskapast mjög við mig frá æsku, en þó eigi borið af mér.
3. Plógmennirnir hafa plægt um hrygg mér, gjört plógför sín löng,
4. en Drottinn hinn réttláti hefir skorið í sundur reipi óguðlegra.
5. Sneypast skulu þeir og undan hörfa, allir þeir sem hata Síon.
6. Þeir skulu verða sem gras á þekju, er visnar áður en það frævist.
7. Sláttumaðurinn skal eigi fylla hönd sína né sá fang sitt sem bindur,og þeir sem fram hjá fara skulu ekki segja: ,,Blessun Drottins sé með yður.`` Vér blessum yður í nafni Drottins!
8. og þeir sem fram hjá fara skulu ekki segja: ,,Blessun Drottins sé með yður.`` Vér blessum yður í nafni Drottins!

  Psalms (129/150)