Psalms (128/150)  

1. Sæll er hver sá, er óttast Drottin, er gengur á hans vegum.
2. Já, afla handa þinna skalt þú njóta, sæll ert þú, vel farnast þér.
3. Kona þín er sem frjósamur vínviður innst í húsi þínu, synir þínir sem teinungar olíutrésins umhverfis borð þitt.
4. Sjá, sannarlega hlýtur slíka blessun sá maður, er óttast Drottin.
5. Drottinn blessi þig frá Síon, þú munt horfa með unun á hamingju Jerúsalem alla ævidaga þína,og sjá sonu sona þinna. Friður sé yfir Ísrael!
6. og sjá sonu sona þinna. Friður sé yfir Ísrael!

  Psalms (128/150)