Psalms (12/150)  

1. Til söngstjórans. Á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur.
2. Hjálpa þú, Drottinn, því að hinir trúuðu eru á brottu, hinir dygglyndu horfnir frá mönnunum.
3. Lygi tala þeir hver við annan, með mjúkfláum vörum og tvískiptu hjarta tala þeir.
4. Ó að Drottinn vildi eyða öllum mjúkfláum vörum, öllum tungum er tala drambsamleg orð,
5. þeim er segja: ,,Með tungunni munum vér sigra, varir vorar hjálpa oss, hver er drottnari yfir oss?``
6. ,,Sakir kúgunar hinna hrjáðu, sakir andvarpa hinna fátæku vil ég nú rísa upp,`` segir Drottinn. ,,Ég vil veita hjálp þeim, er þrá hana.``
7. Orð Drottins eru hrein orð, skírt silfur, sjöhreinsað gull.Þú, Drottinn, munt vernda oss, varðveita oss fyrir þessari kynslóð um aldur. [ (Psalms 12:9) Hinir guðlausu vaða alls staðar uppi, og hrakmenni komast til vegs meðal mannanna. ]
8. Þú, Drottinn, munt vernda oss, varðveita oss fyrir þessari kynslóð um aldur. [ (Psalms 12:9) Hinir guðlausu vaða alls staðar uppi, og hrakmenni komast til vegs meðal mannanna. ]

  Psalms (12/150)