Psalms (110/150)  

1. Davíðssálmur. Svo segir Drottinn við herra minn: ,,Sest þú mér til hægri handar, þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.``
2. Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon, drottna þú mitt á meðal óvina þinna!
3. Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.
4. Drottinn hefir svarið, og hann iðrar þess eigi: ,,Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.``
5. Drottinn er þér til hægri handar, hann knosar konunga á degi reiði sinnar.
6. Hann heldur dóm meðal þjóðanna, fyllir allt líkum, hann knosar höfuð um víðan vang.Á leiðinni drekkur hann úr læknum, þess vegna ber hann höfuðið hátt.
7. Á leiðinni drekkur hann úr læknum, þess vegna ber hann höfuðið hátt.

  Psalms (110/150)