Proverbs (20/31)  

1. Vínið er spottari, sterkur drykkur glaumsamur, og hver sá, er drukkinn reikar, er óvitur.
2. Konungsreiði er eins og ljónsöskur, sá sem egnir hann á móti sér, fyrirgjörir lífi sínu.
3. Það er manni sómi að halda sér frá þrætu, en hver afglapinn ygglir sig.
4. Letinginn plægir ekki á haustin, fyrir því leitar hann um uppskerutímann og grípur í tómt.
5. Ráðin í hjarta mannsins eru sem djúp vötn, og hygginn maður eys þar af.
6. Margir menn eru kallaðir kærleiksríkir, en tryggan vin, hver finnur hann?
7. Réttlátur maður gengur fram í ráðvendni sinni, sæl eru því börn hans eftir hann.
8. Þegar konungur situr á dómstóli, þá skilur hann allt illt úr með augnaráði sínu.
9. Hver getur sagt: ,,Ég hefi haldið hjarta mínu hreinu, ég er hreinn af synd?``
10. Tvenns konar vog og tvenns konar mál, það er hvort tveggja Drottni andstyggð.
11. Sveinninn þekkist þegar á verkum sínum, hvort athafnir hans eru hreinar og einlægar.
12. Eyrað sem heyrir, og augað sem sér, hvort tveggja hefir Drottinn skapað.
13. Elskaðu ekki svefninn, svo að þú verðir ekki fátækur, opnaðu augun, þá muntu mettast af brauði.
14. ,,Slæmt! Slæmt!`` segir kaupandinn, en þegar hann gengur burt, hælist hann um.
15. Til er gull og gnægð af perlum, en hið dýrmætasta þing eru vitrar varir.
16. Tak þú skikkjuna af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir ókunnugan, tak veð af þeim manni, sem hefir gengið í ábyrgð fyrir útlendinga.
17. Sætt er svikabrauðið, en eftir á fyllist munnurinn möl.
18. Vel ráðin áform fá framgang, haf því holl ráð, er þú heyr stríð.
19. Sá sem ljóstar upp leyndarmálum, gengur um sem rógberi, haf því engin mök við málugan mann.
20. Sá sem formælir föður og móður, á hans lampa slokknar í niðamyrkri.
21. Arfur, sem í upphafi var skjótfenginn, blessast eigi að lokum.
22. Seg þú ekki: ,,Ég vil endurgjalda illt!`` Bíð þú Drottins, og hann mun hjálpa þér.
23. Tvenns konar vog er Drottni andstyggð, og svikavog er ekki góð.
24. Spor mannsins eru ákveðin af Drottni, en maðurinn _ hvernig fær hann skynjað veg sinn?
25. Það er manninum snara að hrópa í fljótfærni: ,,Helgað!`` og hyggja fyrst að, þegar heitin eru gjörð.
26. Vitur konungur skilur úr hina óguðlegu og lætur síðan hjólið yfir þá ganga.
27. Andi mannsins er lampi frá Drottni, sem rannsakar hvern afkima hjartans.
28. Kærleiki og trúfesti varðveita konunginn, og hann styður hásæti sitt með kærleika.
29. Krafturinn er ágæti ungra manna, en hærurnar prýði öldunganna.Blóðugar skrámur hreinsa illmennið og högg, sem duglega svíða.
30. Blóðugar skrámur hreinsa illmennið og högg, sem duglega svíða.

  Proverbs (20/31)