Matthew (26/28)  

1. Þegar Jesús hafði lokið öllum þessum orðum, sagði hann við lærisveina sína:
2. ,,Þér vitið, að eftir tvo daga eru páskar. Þá verður Mannssonurinn framseldur til krossfestingar.``
3. Æðstu prestarnir og öldungar lýðsins söfnuðust nú saman í höll æðsta prestsins, er Kaífas hét,
4. og réðu með sér að handsama Jesú með svikum og taka hann af lífi.
5. En þeir sögðu: ,,Ekki á hátíðinni, annars verður uppþot með lýðnum.``
6. En Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa.
7. Kom þá til hans kona og hafði alabastursbuðk með dýrum smyrslum og hellti yfir höfuð honum, þar sem hann sat að borði.
8. Við þessa sjón urðu lærisveinarnir gramir og sögðu: ,,Til hvers er þessi sóun?
9. Þetta hefði mátt selja dýru verði og gefa fátækum.``
10. Jesús varð þess vís og sagði við þá: ,,Hvað eruð þér að angra konuna? Gott verk gjörði hún mér.
11. Fátæka hafið þér jafnan hjá yður, en mig hafið þér ekki ávallt.
12. Þegar hún hellti þessum smyrslum yfir líkama minn, var hún að búa mig til greftrunar.
13. Sannlega segi ég yður: Hvar sem fagnaðarerindi þetta verður flutt, um heim allan, mun þess og getið verða, sem hún gjörði, til minningar um hana.``
14. Þá fór einn þeirra tólf, Júdas Ískaríot að nafni, til æðstu prestanna
15. og sagði: ,,Hvað viljið þér gefa mér fyrir að framselja yður Jesú?`` En þeir greiddu honum þrjátíu silfurpeninga.
16. Upp frá þessu leitaði hann færis að framselja hann.
17. Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna komu lærisveinarnir til Jesú og sögðu: ,,Hvar vilt þú, að vér búum þér páskamáltíðina?``
18. Hann mælti: ,,Farið til ákveðins manns í borginni, og segið við hann: ,Meistarinn segir: Minn tími er í nánd, hjá þér vil ég halda páska með lærisveinum mínum.```
19. Lærisveinarnir gjörðu sem Jesús bauð þeim og bjuggu til páskamáltíðar.
20. Um kvöldið sat hann til borðs með þeim tólf.
21. Og er þeir mötuðust, sagði hann: ,,Sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig.``
22. Þeir urðu mjög hryggir og sögðu við hann, einn af öðrum: ,,Ekki er það ég, herra?``
23. Hann svaraði þeim: ,,Sá sem dýfði hendi í fatið með mér, mun svíkja mig.
24. Mannssonurinn fer að sönnu héðan, svo sem um hann er ritað, en vei þeim manni, sem því veldur, að Mannssonurinn verður framseldur. Betra væri þeim manni að hafa aldrei fæðst.``
25. En Júdas, sem sveik hann, sagði: ,,Rabbí, ekki er það ég?`` Jesús svaraði: ,,Þú sagðir það.``
26. Þá er þeir mötuðust, tók Jesús brauð, þakkaði Guði, braut það og gaf lærisveinunum og sagði: ,,Takið og etið, þetta er líkami minn.``
27. Og hann tók kaleik, gjörði þakkir, gaf þeim og sagði: ,,Drekkið allir hér af.
28. Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga til fyrirgefningar synda.
29. Ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af þessum vínviðar ávexti til þess dags, er ég drekk hann nýjan með yður í ríki föður míns.``
30. Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn, fóru þeir til Olíufjallsins.
31. Þá segir Jesús við þá: ,,Á þessari nóttu munuð þér allir hneykslast á mér, því að ritað er: ,Ég mun slá hirðinn, og sauðir hjarðarinnar munu tvístrast.`
32. En eftir að ég er upp risinn, mun ég fara á undan yður til Galíleu.``
33. Þá segir Pétur: ,,Þótt allir hneykslist á þér, skal ég aldrei hneykslast.``
34. Jesús sagði við hann: ,,Sannlega segi ég þér: Á þessari nóttu, áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér.``
35. Pétur svarar: ,,Þótt ég ætti að deyja með þér, þá mun ég aldrei afneita þér.`` Eins töluðu allir lærisveinarnir.
36. Þá kemur Jesús með þeim til staðar, er heitir Getsemane, og hann segir við lærisveinana: ,,Setjist hér, meðan ég fer og biðst fyrir þarna.``
37. Hann tók með sér þá Pétur og báða sonu Sebedeusar. Og nú setti að honum hryggð og angist.
38. Hann segir við þá: ,,Sál mín er hrygg allt til dauða. Bíðið hér og vakið með mér.``
39. Þá gekk hann lítið eitt áfram, féll fram á ásjónu sína, baðst fyrir og sagði: ,,Faðir minn, ef verða má, þá fari þessi kaleikur fram hjá mér. Þó ekki sem ég vil, heldur sem þú vilt.``
40. Hann kemur aftur til lærisveinanna og finnur þá sofandi. Þá sagði hann við Pétur: ,,Þér gátuð þá ekki vakað með mér eina stund?
41. Vakið og biðjið, að þér fallið ekki í freistni. Andinn er reiðubúinn, en holdið veikt.``
42. Aftur vék hann brott annað sinn og bað: ,,Faðir minn, ef eigi verður hjá því komist, að ég drekki þennan kaleik, þá verði þinn vilji.``
43. Þegar hann kom aftur, fann hann þá enn sofandi, því drungi var á augum þeirra.
44. Þá fór hann enn frá þeim og baðst fyrir þriðja sinn með sömu orðum og fyrr.
45. Og hann kom til lærisveinanna og sagði við þá: ,,Sofið þér enn og hvílist? Sjá, stundin er komin og Mannssonurinn er framseldur í hendur syndugra manna.
46. Standið upp, förum! Í nánd er sá, er mig svíkur.``
47. Meðan hann var enn að tala, kom Júdas, einn þeirra tólf, og með honum mikill flokkur frá æðstu prestunum og öldungum lýðsins, og höfðu þeir sverð og barefli.
48. Svikarinn hafði sagt þeim þetta til marks: ,,Sá sem ég kyssi, hann er það. Takið hann höndum.``
49. Hann gekk beint að Jesú og sagði: ,,Heill, rabbí!`` og kyssti hann.
50. Jesús sagði við hann: ,,Vinur, hví ertu hér?`` Þá komu hinir, lögðu hendur á Jesú og tóku hann.
51. Einn þeirra, sem með Jesú voru, greip til sverðs og brá því, hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað.
52. Jesús sagði við hann: ,,Slíðra sverð þitt! Allir, sem sverði bregða, munu fyrir sverði falla.
53. Hyggur þú, að ég geti ekki beðið föður minn að senda mér nú meira en tólf sveitir engla?
54. Hvernig ættu þá ritningarnar að rætast, sem segja, að þetta eigi svo að verða?``
55. Á þeirri stundu sagði Jesús við flokkinn: ,,Eruð þér að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja til að handtaka mig? Daglega sat ég í helgidóminum og kenndi, og þér tókuð mig ekki höndum.
56. En allt verður þetta til þess, að ritningar spámannanna rætist.`` Þá yfirgáfu hann lærisveinarnir allir og flýðu.
57. Þeir sem tóku Jesú höndum, færðu hann til Kaífasar, æðsta prests, en þar voru saman komnir fræðimennirnir og öldungarnir.
58. Pétur fylgdi honum álengdar, allt að garði æðsta prestsins. Þar gekk hann inn og settist hjá þjónunum til að sjá, hver yrði endir á.
59. Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu ljúgvitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann,
60. en fundu ekkert, þótt margir ljúgvottar kæmu. Loks komu tveir
61. og sögðu: ,,Þessi maður sagði: ,Ég get brotið niður musteri Guðs og reist það aftur á þrem dögum.```
62. Þá stóð æðsti presturinn upp og sagði: ,,Svarar þú því engu, sem þessir vitna gegn þér?``
63. En Jesús þagði. Þá sagði æðsti presturinn við hann: ,,Ég særi þig við lifandi Guð, segðu oss: Ertu Kristur, sonur Guðs?``
64. Jesús svarar honum: ,,Þú sagðir það. En ég segi yður: Upp frá þessu munuð þér sjá Mannssoninn sitja til hægri handar máttarins og koma á skýjum himins.``
65. Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: ,,Hann guðlastar, hvað þurfum vér nú framar votta við? Þér heyrðuð guðlastið.
66. Hvað líst yður?`` Þeir svöruðu: ,,Hann er dauðasekur.``
67. Og þeir hræktu í andlit honum og slógu hann með hnefunum, en aðrir börðu hann með stöfum
68. og sögðu: ,,Spáðu nú, Kristur, hver var að slá þig?``
69. En Pétur sat úti í garðinum. Þar kom að honum þerna ein og sagði: ,,Þú varst líka með Jesú frá Galíleu.``
70. Því neitaði hann svo allir heyrðu og sagði: ,,Ekki veit ég, hvað þú ert að fara.``
71. Hann gekk út í fordyrið. Þar sá hann önnur þerna og sagði við þá, sem þar voru: ,,Þessi var með Jesú frá Nasaret.``
72. En hann neitaði sem áður og sór þess eið, að hann þekkti ekki þann mann.
73. Litlu síðar komu þeir, er þar stóðu, og sögðu við Pétur: ,,Víst ertu líka einn af þeim, enda segir málfæri þitt til þín.``
74. En hann sór og sárt við lagði, að hann þekkti ekki manninn. Um leið gól hani.Og Pétur minntist þess, er Jesús hafði mælt: ,,Áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér.`` Og hann gekk út og grét beisklega.
75. Og Pétur minntist þess, er Jesús hafði mælt: ,,Áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér.`` Og hann gekk út og grét beisklega.

  Matthew (26/28)