Joshua (12/24)  

1. Þessir eru konungar landsins, þeir er Ísraelsmenn unnu sigur á og tóku lönd af hinumegin Jórdanar, austanmegin, frá Arnoná til Hermonfjalls og allt sléttlendið austanmegin:
2. Síhon, Amorítakonungur, sem bjó í Hesbon og réð landi frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, og dalnum miðjum og hálfu Gíleað að Jabboká, sem er á landamærum Ammóníta,
3. og sléttlendinu að Genesaretvatni að austanverðu og að vatninu á sléttlendinu, Saltasjó, að austanverðu, suður undir Bet Jesímót, og til suðurs að Pisgahlíðum.
4. Sömuleiðis land Ógs, konungs í Basan, sem var einn þeirra Refaíta, er eftir voru, og bjó í Astarót og Edreí
5. og réð yfir Hermonfjöllum, Salka og öllu Basan, að landamærum Gesúra og Maakatíta, og yfir hálfu Gíleað, að landamærum Síhons, konungs í Hesbon.
6. Móse, þjónn Drottins, og Ísraelsmenn höfðu unnið sigur á þeim, og Móse, þjónn Drottins, hafði gefið Rúbenítum, Gaðítum og hálfri ættkvísl Manasse landið til eignar.
7. Þessir eru konungar landsins, þeir er Jósúa og Ísraelsmenn unnu sigur á fyrir vestan Jórdan, frá Baal Gað í Líbanonsdal til Skallabergs, sem liggur upp til Seír, _ en landið gaf Jósúa ættkvíslum Ísraels til eignar eftir skiptingu þeirra _,
8. í fjalllendinu, á láglendinu, á sléttlendinu, í fjallahlíðunum, í eyðimörkinni og í suðurlandinu, _ land Hetíta, Amoríta, Kanaaníta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta:
9. Konungurinn í Jeríkó einn, konungurinn í Aí, sem er hjá Betel, einn,
10. konungurinn í Jerúsalem einn, konungurinn í Hebron einn,
11. konungurinn í Jarmút einn, konungurinn í Lakís einn,
12. konungurinn í Eglon einn, konungurinn í Geser einn,
13. konungurinn í Debír einn, konungurinn í Geder einn,
14. konungurinn í Horma einn, konungurinn í Arad einn,
15. konungurinn í Líbna einn, konungurinn í Adúllam einn,
16. konungurinn í Makeda einn, konungurinn í Betel einn,
17. konungurinn í Tappúa einn, konungurinn í Hefer einn,
18. konungurinn í Afek einn, konungurinn í Saron einn,
19. konungurinn í Madón einn, konungurinn í Hasór einn,
20. konungurinn í Simrón Meróm einn, konungurinn í Aksaf einn,
21. konungurinn í Taanak einn, konungurinn í Megíddó einn,
22. konungurinn í Kedes einn, konungurinn í Jokneam hjá Karmel einn,
23. konungurinn í Dór í Dórshæðum einn, konungur heiðingjanna í Gilgal einn,konungurinn í Tirsa einn, _ alls þrjátíu og einn konungur.
24. konungurinn í Tirsa einn, _ alls þrjátíu og einn konungur.

  Joshua (12/24)