John (18/21)  

1. Þegar Jesús hafði þetta mælt, fór hann út með lærisveinum sínum og yfir um lækinn Kedron. Þar var grasgarður, sem Jesús gekk inn í og lærisveinar hans.
2. Júdas, sem sveik hann, þekkti líka þennan stað, því Jesús og lærisveinar hans höfðu oft komið þar saman.
3. Júdas tók með sér flokk hermanna og verði frá æðstu prestum og faríseum. Þeir koma þar með blysum, lömpum og vopnum.
4. Jesús vissi allt, sem yfir hann mundi koma, gekk fram og sagði við þá: ,,Að hverjum leitið þér?``
5. Þeir svöruðu honum: ,,Að Jesú frá Nasaret.`` Hann segir við þá: ,,Ég er hann.`` En Júdas, sem sveik hann, stóð líka hjá þeim.
6. Þegar Jesús sagði við þá: ,,Ég er hann,`` hopuðu þeir á hæl og féllu til jarðar.
7. Þá spurði hann þá aftur: ,,Að hverjum leitið þér?`` Þeir svöruðu: ,,Að Jesú frá Nasaret.``
8. Jesús mælti: ,,Ég sagði yður, að ég væri hann. Ef þér leitið mín, þá lofið þessum að fara.``
9. Þannig rættist orð hans, er hann hafði mælt: ,,Engum glataði ég af þeim, sem þú gafst mér.``
10. Símon Pétur hafði sverð, brá því og hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum hægra eyrað. Þjónninn hét Malkus.
11. Þá sagði Jesús við Pétur: ,,Sting sverðinu í slíðrin. Á ég ekki að drekka kaleikinn, sem faðirinn hefur fengið mér?``
12. Hermennirnir, foringinn og varðmenn Gyðinga tóku nú Jesú höndum og bundu hann
13. og færðu hann fyrst til Annasar. Hann var tengdafaðir Kaífasar, sem var æðsti prestur það ár.
14. En Kaífas var sá sem gefið hafði Gyðingum það ráð, að betra væri, að einn maður dæi fyrir lýðinn.
15. Símon Pétur fylgdi Jesú og annar lærisveinn. Sá lærisveinn var kunnugur æðsta prestinum og fór með Jesú inn í hallargarð æðsta prestsins.
16. En Pétur stóð utan dyra. Hinn lærisveinninn, sem var kunnugur æðsta prestinum, kom út aftur, talaði við þernuna, sem dyra gætti, og fór inn með Pétur.
17. Þernan við dyrnar sagði þá við Pétur: ,,Ert þú ekki líka einn af lærisveinum þessa manns?`` Hann sagði: ,,Ekki er ég það.``
18. Þjónarnir og varðmennirnir höfðu kveikt kolaeld, því kalt var, og stóðu við hann og vermdu sig. Pétur stóð hjá þeim og ornaði sér.
19. Nú spurði æðsti presturinn Jesú um lærisveina hans og kenningu hans.
20. Jesús svaraði honum: ,,Ég hef talað opinskátt í áheyrn heimsins. Ég hef ætíð kennt í samkundunni og í helgidóminum, þar sem allir Gyðingar safnast saman, en í leynum hef ég ekkert talað.
21. Hví spyr þú mig? Spyrðu þá, sem heyrt hafa, hvað ég hef við þá talað. Þeir vita hvað ég hef sagt.``
22. Þegar Jesús sagði þetta, rak einn varðmaður, sem þar stóð, honum löðrung og sagði: ,,Svarar þú æðsta prestinum svona?``
23. Jesús svaraði honum: ,,Hafi ég illa mælt, þá sanna þú, að svo hafi verið, en hafi ég rétt að mæla, hví slær þú mig?``
24. Þá sendi Annas hann bundinn til Kaífasar æðsta prests.
25. En Símon Pétur stóð og vermdi sig. Hann var þá spurður: ,,Ert þú ekki líka einn af lærisveinum hans?`` Hann neitaði því og sagði: ,,Ekki er ég það.``
26. Þá sagði einn af þjónum æðsta prestsins, frændi þess, sem Pétur sneið af eyrað: ,,Sá ég þig ekki í grasgarðinum með honum?``
27. Aftur neitaði Pétur, og um leið gól hani.
28. Nú var Jesús fluttur frá Kaífasi til hallar landshöfðingjans. Það var snemma morguns. Gyðingar fóru ekki sjálfir inn í höllina, svo að þeir saurguðust ekki, heldur mættu neyta páskamáltíðar.
29. Pílatus kom út til þeirra og sagði: ,,Hvaða ákæru berið þér fram gegn þessum manni?``
30. Þeir svöruðu: ,,Ef þetta væri ekki illvirki, hefðum vér ekki selt hann þér í hendur.``
31. Pílatus segir við þá: ,,Takið þér hann, og dæmið hann eftir yðar lögum.`` Gyðingar svöruðu: ,,Oss leyfist ekki að taka neinn af lífi.``
32. Þannig rættist orð Jesú, þegar hann gaf til kynna, með hvaða hætti hann átti að deyja.
33. Pílatus gekk þá aftur inn í höllina, kallaði Jesú fyrir sig og sagði við hann: ,,Ert þú konungur Gyðinga?``
34. Jesús svaraði: ,,Mælir þú þetta af sjálfum þér, eða hafa aðrir sagt þér frá mér?``
35. Pílatus svaraði: ,,Er ég þá Gyðingur? Þjóð þín og æðstu prestarnir hafa selt þig mér í hendur. Hvað hefur þú gjört?``
36. Jesús svaraði: ,,Mitt ríki er ekki af þessum heimi. Væri mitt ríki af þessum heimi, hefðu þjónar mínir barist, svo ég yrði ekki framseldur Gyðingum. En nú er ríki mitt ekki þaðan.``
37. Þá segir Pílatus við hann: ,,Þú ert þá konungur?`` Jesús svaraði: ,,Rétt segir þú. Ég er konungur. Til þess er ég fæddur og til þess er ég kominn í heiminn, að ég beri sannleikanum vitni. Hver sem er af sannleikanum, heyrir mína rödd.``
38. Pílatus segir við hann: ,,Hvað er sannleikur?`` Að svo mæltu gekk hann aftur út til Gyðinga og sagði við þá: ,,Ég finn enga sök hjá honum.
39. Þér eruð vanir því, að ég gefi yður einn mann lausan á páskunum. Viljið þér nú, að ég gefi yður lausan konung Gyðinga?``Þeir hrópuðu á móti: ,,Ekki hann, heldur Barabbas.`` En Barabbas var ræningi.
40. Þeir hrópuðu á móti: ,,Ekki hann, heldur Barabbas.`` En Barabbas var ræningi.

  John (18/21)