John (12/21)  

1. Sex dögum fyrir páska kom Jesús til Betaníu, þar sem Lasarus var, sá er hann vakti frá dauðum.
2. Þar var honum búinn kvöldverður, og Marta gekk um beina, en Lasarus var einn þeirra, sem að borði sátu með honum.
3. Þá tók María pund af ómenguðum, dýrum nardussmyrslum og smurði fætur Jesú og þerraði með hári sínu fætur hans. En húsið fylltist ilmi smyrslanna.
4. Segir þá Júdas Ískaríot, einn lærisveina hans, sá er mundi svíkja hann:
5. ,,Hví voru þessi smyrsl ekki seld fyrir þrjú hundruð denara og gefin fátækum?``
6. Ekki sagði hann þetta af því, að hann léti sér annt um fátæka, heldur af því, að hann var þjófur. Hann hafði pyngjuna og tók það, sem í hana var látið.
7. Þá sagði Jesús: ,,Lát hana í friði. Hún hefur geymt þetta til greftrunardags míns.
8. Fátæka hafið þér ætíð hjá yður, en mig hafið þér ekki ávallt.``
9. Nú komst allur fjöldi Gyðinga að því, að Jesús væri þarna, og þeir komu þangað, ekki aðeins hans vegna, heldur og til að sjá Lasarus, sem hann hafði vakið frá dauðum.
10. Þá réðu æðstu prestarnir af að taka einnig Lasarus af lífi,
11. því vegna hans sneru margir Gyðingar baki við þeim og fóru að trúa á Jesú.
12. Sá mikli mannfjöldi, sem kominn var til hátíðarinnar, frétti degi síðar, að Jesús væri að koma til Jerúsalem.
13. Þeir tóku þá pálmagreinar, fóru út á móti honum og hrópuðu: ,,Hósanna! Blessaður sé sá, sem kemur, í nafni Drottins, konungur Ísraels!``
14. Jesús fann ungan asna og settist á bak honum, eins og skrifað er:
15. Óttast ekki, dóttir Síon. Sjá, konungur þinn kemur, ríðandi á ösnufola.
16. Lærisveinar hans skildu þetta ekki í fyrstu, en þegar Jesús var dýrlegur orðinn, minntust þeir þess, að þetta var ritað um hann og að þeir höfðu gjört þetta fyrir hann.
17. Nú vitnaði fólkið, sem með honum var, þegar hann kallaði Lasarus út úr gröfinni og vakti hann frá dauðum.
18. Vegna þess fór einnig mannfjöldinn á móti honum, því menn höfðu heyrt, að hann hefði gjört þetta tákn.
19. Því sögðu farísear sín á milli: ,,Þér sjáið, að þér ráðið ekki við neitt. Allur heimurinn eltir hann.``
20. Grikkir nokkrir voru meðal þeirra, sem fóru upp eftir til að biðjast fyrir á hátíðinni.
21. Þeir komu til Filippusar frá Betsaídu í Galíleu, báðu hann og sögðu: ,,Herra, oss langar að sjá Jesú.``
22. Filippus kemur og segir það Andrési. Andrés og Filippus fara og segja Jesú.
23. Jesús svaraði þeim: ,,Stundin er komin, að Mannssonurinn verði gjörður dýrlegur.
24. Sannlega, sannlega segi ég yður: Ef hveitikornið fellur ekki í jörðina og deyr, verður það áfram eitt. En ef það deyr, ber það mikinn ávöxt.
25. Sá sem elskar líf sitt, glatar því, en sá sem hatar líf sitt í þessum heimi, mun varðveita það til eilífs lífs.
26. Sá sem þjónar mér, fylgi mér eftir, og hvar sem ég er, þar mun og þjónn minn vera. Þann sem þjónar mér, mun faðirinn heiðra.
27. Nú er sál mín skelfd, og hvað á ég að segja? Faðir, frelsa mig frá þessari stundu? Nei, til þessa er ég kominn að þessari stundu:
28. Faðir, gjör nafn þitt dýrlegt!`` Þá kom rödd af himni: ,,Ég hef gjört það dýrlegt og mun enn gjöra það dýrlegt.``
29. Mannfjöldinn, sem hjá stóð og hlýddi á, sagði, að þruma hefði riðið yfir. En aðrir sögðu: ,,Engill var að tala við hann.``
30. Jesús svaraði þeim: ,,Þessi rödd kom ekki mín vegna, heldur yðar vegna.
31. Nú gengur dómur yfir þennan heim. Nú skal höfðingja þessa heims út kastað.
32. Og þegar ég verð hafinn upp frá jörðu, mun ég draga alla til mín.``
33. Þetta sagði hann til að gefa til kynna, með hvaða hætti hann átti að deyja.
34. Mannfjöldinn svaraði honum: ,,Lögmálið segir oss, að Kristur muni verða til eilífðar. Hvernig getur þú sagt, að Mannssonurinn eigi að verða upp hafinn? Hver er þessi Mannssonur?``
35. Þá sagði Jesús við þá: ,,Skamma stund er ljósið enn á meðal yðar. Gangið, meðan þér hafið ljósið, svo að myrkrið hremmi yður ekki. Sá sem gengur í myrkri, veit ekki, hvert hann fer.
36. Trúið á ljósið, meðan þér hafið ljósið, svo að þér verðið börn ljóssins.`` Þetta mælti Jesús og fór burt og duldist þeim.
37. Þótt hann hefði gjört svo mörg tákn fyrir augum þeirra, trúðu þeir ekki á hann,
38. svo að rættist orð Jesaja spámanns, er hann mælti: Drottinn, hver trúði boðun vorri, og hverjum varð armur Drottins opinber?
39. Þess vegna gátu þeir ekki trúað, enda segir Jesaja á öðrum stað:
40. Hann hefur blindað augu þeirra og forhert hjarta þeirra, að þeir sjái ekki með augunum né skilji með hjartanu og snúi sér og ég lækni þá.
41. Jesaja sagði þetta af því að hann sá dýrð hans og talaði um hann.
42. Samt trúðu margir á hann, jafnvel höfðingjar, en gengust ekki við því vegna faríseanna, svo að þeir yrðu ekki samkundurækir.
43. Þeir kusu heldur heiður manna en heiður frá Guði.
44. En Jesús hrópaði: ,,Sá sem trúir á mig, trúir ekki á mig, heldur þann sem sendi mig,
45. og sá sem sér mig, sér þann er sendi mig.
46. Ég er ljós í heiminn komið, svo að enginn, sem á mig trúir, sé áfram í myrkri.
47. Ef nokkur heyrir orð mín og gætir þeirra ekki, þá dæmi ég hann ekki. Ég er ekki kominn til að dæma heiminn, heldur til að frelsa heiminn.
48. Sá sem hafnar mér og tekur ekki við orðum mínum, hefur sinn dómara: Orðið, sem ég hef talað, verður dómari hans á efsta degi.
49. Því ég hef ekki talað af sjálfum mér, heldur hefur faðirinn, sem sendi mig, boðið mér, hvað ég skuli segja og hvað ég skuli tala.Og ég veit, að boðorð hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það tala ég því eins og faðirinn hefur sagt mér.``
50. Og ég veit, að boðorð hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það tala ég því eins og faðirinn hefur sagt mér.``

  John (12/21)