Job (25/42)  

1. Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:
2. Hans er drottinvald og ótti, hans sem lætur frið ríkja í hæðum sínum.
3. Verður tölu komið á hersveitir hans, og yfir hverjum rennur ekki upp ljós hans?
4. Hvernig ætti maðurinn þá að vera réttlátur hjá Guði, og hvernig ætti sá að vera hreinn, sem af konu er fæddur?
5. Sjá, jafnvel tunglið, það er ekki bjart, og stjörnurnar eru ekki hreinar í augum hans,hvað þá maðurinn, maðkurinn, og mannssonurinn, ormurinn!
6. hvað þá maðurinn, maðkurinn, og mannssonurinn, ormurinn!

  Job (25/42)