← Genesis (50/50) |
1. | Jósef laut þá ofan að andliti föður síns og grét yfir honum og kyssti hann. |
2. | Og Jósef bauð þjónum sínum, læknunum, að smyrja föður sinn. Og læknarnir smurðu Ísrael, |
3. | en til þess gengu fjörutíu dagar, því að svo lengi stendur á smurningunni. Og Egyptar syrgðu hann sjötíu daga. |
4. | Er sorgardagarnir voru liðnir, kom Jósef að máli við hirðmenn Faraós og mælti: ,,Hafi ég fundið náð í augum yðar, þá berið Faraó þessi orð mín: |
5. | Faðir minn tók eið af mér og sagði: ,Sjá, nú mun ég deyja. Í gröf minni, sem ég gróf handa mér í Kanaanlandi, skaltu jarða mig.` Leyf mér því að fara og jarða föður minn. Að því búnu skal ég koma aftur.`` |
6. | Og Faraó sagði: ,,Far þú og jarða föður þinn, eins og hann lét þig vinna eið að.`` |
7. | Og Jósef fór að jarða föður sinn, og með honum fóru allir þjónar Faraós, öldungar hirðarinnar og allir öldungar Egyptalands |
8. | og allir heimilismenn Jósefs, svo og bræður hans og heimilismenn föður hans. Aðeins létu þeir börn sín, sauði sína og nautgripi eftir verða í Gósenlandi. |
9. | Í för með honum voru vagnar og riddarar, og var það stórmikið föruneyti. |
10. | En er þeir komu til Góren-haatad, sem er hinumegin við Jórdan, þá hófu þeir þar harmakvein mikið og hátíðlegt mjög, og hann hélt sorgarhátíð eftir föður sinn í sjö daga. |
11. | Og er landsbúar, Kanaanítar, sáu sorgarhátíðina í Góren-haatad, sögðu þeir: ,,Þar halda Egyptar mikla sorgarhátíð.`` Fyrir því var sá staður nefndur Abel Mísraím. Liggur hann hinumegin við Jórdan. |
12. | Synir hans gjörðu svo við hann sem hann hafði boðið þeim. |
13. | Og synir hans fluttu hann til Kanaanlands og jörðuðu hann í helli Makpelalands, sem Abraham hafði keypt ásamt akrinum fyrir grafreit af Efron Hetíta, gegnt Mamre. |
14. | Og Jósef fór aftur til Egyptalands, er hann hafði jarðað föður sinn, hann og bræður hans og allir, sem með honum höfðu farið að jarða föður hans. |
15. | Er bræður Jósefs sáu að faðir þeirra var dáinn, hugsuðu þeir: ,,En ef Jósef nú fjandskapaðist við oss og launaði oss allt hið illa, sem vér höfum gjört honum!`` |
16. | Og þeir gjörðu Jósef svolátandi orðsending: ,,Faðir þinn mælti svo fyrir, áður en hann dó: |
17. | ,Þannig skuluð þér mæla við Jósef: Æ, fyrirgef bræðrum þínum misgjörð þeirra og synd, að þeir gjörðu þér illt.` Fyrirgef því misgjörðina þjónum þess Guðs, sem faðir þinn dýrkaði.`` Og Jósef grét, er þeir mæltu svo til hans. |
18. | Því næst komu bræður hans sjálfir og féllu fram fyrir honum og sögðu: ,,Sjá, vér erum þrælar þínir.`` |
19. | En Jósef sagði við þá: ,,Óttist ekki, því að er ég í Guðs stað? |
20. | Þér ætluðuð að gjöra mér illt, en Guð sneri því til góðs, til að gjöra það, sem nú er fram komið, að halda lífinu í mörgu fólki. |
21. | Verið því óhræddir, ég skal annast yður og börn yðar.`` Síðan hughreysti hann þá og talaði við þá blíðlega. |
22. | Jósef bjó í Egyptalandi, hann og ættlið föður hans. Og Jósef varð hundrað og tíu ára gamall. |
23. | Og Jósef sá niðja Efraíms í þriðja lið. Og synir Makírs, sonar Manasse, fæddust á kné Jósefs. |
24. | Og Jósef sagði við bræður sína: ,,Nú mun ég deyja. En Guð mun vissulega vitja yðar og flytja yður úr þessu landi til þess lands, sem hann hefir svarið Abraham, Ísak og Jakob.``Og Jósef tók eið af Ísraels sonum og mælti: ,,Sannlega mun Guð vitja yðar. Flytjið þá bein mín héðan.`` |
25. | Og Jósef tók eið af Ísraels sonum og mælti: ,,Sannlega mun Guð vitja yðar. Flytjið þá bein mín héðan.`` |
← Genesis (50/50) |