Ezra (1/10)  

1. Á fyrsta ríkisári Kýrusar Persakonungs blés Drottinn honum því í brjóst _ til þess að orð Drottins fyrir munn Jeremía rættust _ að láta boð út ganga um allt ríki sitt, og það í konungsbréfi, á þessa leið:
2. ,,Svo segir Kýrus Persakonungur: Öll konungsríki jarðarinnar hefir Drottinn, Guð himnanna, gefið mér, og hann hefir skipað mér að reisa sér musteri í Jerúsalem í Júda.
3. Hver sá meðal yðar, sem tilheyrir þjóð hans, með honum sé Guð hans, og hann fari heim til Jerúsalem í Júda og reisi musteri Drottins, Ísraels Guðs. Hann er sá Guð, sem býr í Jerúsalem.
4. Og hvern þann, sem enn er eftir, á sérhverjum þeim stað þar sem hann dvelst sem útlendingur, hann skulu menn á þeim stað styrkja með silfri og gulli og lausafé og kvikfénaði, auk sjálfviljagjafa til Guðs musteris í Jerúsalem.``
5. Þá tóku ætthöfðingjar Júda og Benjamíns og prestarnir og levítarnir sig upp _ allir þeir, er Guð hafði blásið því í brjóst að fara og reisa musteri Drottins í Jerúsalem.
6. Og allir nágrannar þeirra hjálpuðu þeim um áhöld úr silfri, um gull, um lausafé og um kvikfénað og um gersemar, auk alls þess, er menn gáfu sjálfviljuglega.
7. Kýrus konungur lét af hendi kerin úr musteri Drottins, þau er Nebúkadnesar hafði flutt burt frá Jerúsalem og sett í musteri guðs síns.
8. Kýrus Persakonungur fékk þau í hendur Mítredat féhirði, og hann taldi þau út í hendur Sesbasar, höfðingja Júdaættkvíslar.
9. En talan á þeim var þessi: 30 gullskálar, 1.000 silfurskálar, 29 pönnur,
10. 30 könnur af gulli, silfurkönnur minni háttar: 410, önnur ker 1.000 _öll kerin af gulli og silfri til samans 5.400. Allt þetta flutti Sesbasar með sér, þá er hinir herleiddu voru fluttir frá Babýlon heim til Jerúsalem.
11. öll kerin af gulli og silfri til samans 5.400. Allt þetta flutti Sesbasar með sér, þá er hinir herleiddu voru fluttir frá Babýlon heim til Jerúsalem.

      Ezra (1/10)